Ný síða á nýju ári
Jæja þá er komið að því, ný síða í loftið og vonandi verður hún jafnvel sótt og sú eldri. Nú er verið að vinna í því að koma gömlu færslunum hingað inn svo þetta sé nú allt á sama stað. Annars er það helst að frétta að lífið í Lundi er komið á stað og flest eins og það var þegar við skildum við það fyrir áramót. Svo er beðið eftir ferðasögu/sjúkrasögu frá Helgu og hefur hún lofaði því innan skamms en fram að því verið þið að láta ykkur nokkrar myndir frá herlegheitunum nægja…….
![]() |
| Svipmyndir frá jólum |
Categories: Almennt, Fjölskylda, Myndir







Sæl öll.
Til hamingju með nýju fínu síðuna og gaman að sjá jólamyndirnar!!
Kv. Lilja
Til hamingju með nýju síðuna !
Er að fíla hana í botn..
Nú er bara að fara pósta helst tvisvar á dag
Takk fyrir þetta, gaman að sjá hversu duglega Lilja er orðin að skoða og ekki síður skrifa athugasemdir. Svo er umm að gera að nota alltaf sama nafn þegar þið kommentið svo þið hangið inni á lista hinna skoðanaglöðustu.
Brynjar ég er ekki hissa á því að þú fílir þessa síðu…kannastu við eitthvað hérna
Hæ hæ.
Flott síða hjá þér og flottar myndir, gaman að sjá nokkrar svarthvítar;)
Gangi ykkur vel að flytja.
kveðja
Halldóra
Jú jú.. eitt og annað sem ég kannast við
En eitt sem ég þarf að spyrja að;
Hvernig útfæriru “Á fóninum” – dálkinn??
Eitthvað spes Wordpress+Last.fm – unit eða ?
Verið þið sæl
Gleiðlegt ár!
Til hamingju með nýju síðuna! Maður þarf eitthvað að fara að hugsa sinn gang ef maður á ekki að verða eftir í netheiminum.