Guðmundur brýtur blað !!
Eins og svo margir vita hef ég mikið gaman af tónlist og er oftast að hlusta á eitthvað og ef ekki þá að söngla eitthvað annað, við misgóðar undirtektir. Í ljósi þessarar staðreynda er gaman að segja frá því að í dag var blað brotið í tónlistarsögu minni þar sem ég keypti mér miða á Hróarskeldu hátíðina í sumar. Það eru komin all nokkur skemmtileg númer og einhver eiga víst eftir að bætast við. Aðal númerið enn sem komið er verður að teljast þeir félagar í Radiohead og ólíklegt að einhver komi til með að velta þeim úr sessi. Aðra má nefna, svo sem Nick Cave, Neil Young, Kings of Leon, Band of horses, The Chemical Brothers, Streets, Teit þann færeyska að ógleymdum ellirokkurunum í Judas Priest.
Við erum hér fjórir á Kjammanum sem ætlum að fara saman á hátíðina og nú er verið að vinna í að redda tjöldum og helsta viðlegubúnaði. Svo er auðvitað farið að telja niður og vonandi verð ég ekki búin að týna miðanum þegar að þessu kemur.
Myndin er fengin á íslensku Hróarskeldu síðunni






Glæsilegt – til hamingju það er ekki laust við að ég öfundi þig. // ánb
Sammála síðasta ræðumanni.
Stóröfunda þig !
Takk fyrir það kæru vinir, enn eru lausir miðar og ég skal passa tjaldstæði
Miði.is og skella sér !!!