Heim > Almennt, Ferðalög, Fréttir, Tónlist > Líður að jólum

Líður að jólum

Jæja eins og margir vita nú þegar þá hófst dagurinn svo sannarlega með látum.  Ég hrökk upp við það að það er sparkað duglega í mig eða rúmið, eða það hélt ég allavega.  Eftir að hafa hent sænginni á gólfið og hlaupið eftir Freyju fattaði ég samt að þetta var jarðskjálfti.  Það varð lítið um svefn eftir þetta þar sem Freyja var vöknuð og tók ekki í mál að vera að fara að sofa eftir svoa stuð.  Klukkan átta var svo seinna prófið sem ég tók þetta haustið og í stuttu máli er því lokið og ekki orð um það meir.  Það hefur svo verið fallið frá því að fjölskyldan fari til Florida um áramótin og þess í stað verður farið til Íslands sem er auðvitað engu síðra, ég hlakka allavega til að koma í sveitina mína sem allra fyrst og anda að mér skagfirsku sveitalofti.  Í dag tók svo Freyja upp á því að vera lasin heima með smá hita og hósta og geri ég ráð fyrir að vera heima með henni á morgun en svo fer hún nú kanski á leikskóla svo ég geti farið að kaupa jólatré og pakka.Um síðustu helgi var svo Ásta systir í heimsókn hjá okkur og var það alveg frábært þrátt fyrir að það væri aðeis of mikið að gera í próflestri og ekki nógur tími til að sinna gestum, það er því vonandi að hún komi sem fyrst aftur í heimsókn.  En framundan eru rólegheit hjá mér og smá jólaundirbúningur.  Ég sendi svo öllum sem voru að klára próf eða eru alveg að fara að klára próf hamingjuóskir og ykkur hinum einnig bestu jólakveðjur frá Lundi, Gummi skjálfti.

Categories: Almennt, Ferðalög, Fréttir, Tónlist Tags:
  1. Halldóra
    17. desember 2008 á 13:56 | #1

    Við hlökkum líka rosa mikið til að fá að sjá ykkur. Ég sagði krökkunum í gær að þið kæmuð heim fyrir áramót og þau hrópuðu húrra þá fáum við að hitta Freyju;)

    kveðja
    Halldóra og co

  1. Engin trackback enn.