Tæknileg fötlun
Nú höfum við mátt búa við tæknilega fötlun í nokkurn tíma þar sem tölvusíminn virðist virka þegar honum sýnist svo og nú hefur neti verið að stríða okkur all hressilega og því erum við eiginlega aftengd frá umheiminum. Við vonum að þetta fari nú að lagast svo við getum farið að vera í sambandi við vini okkar.
Annars eru jólin alvega að fara að bresta á hér eins og annarsstaðar og við vorum nú svo heppin að Maggi og Sunna lánuðu okkur bílinn sinn meðan að þau eru á Íslandi svo það er búið að fara og kaupa jólatré og nýtt rúm handa Freyju. Hún er því orðin stóra stelpan og getur vippað sér sjálf fram úr og hlaupið inn til okkar, þetta hefur auðvitað það í för með sér að hún er duglegri að borða, nánast hætt með bleyju og mun minna með snuð en áður, enda orðin stór stelpa
Jæja ég vona að þið saknið okkar ekki allt of mikið og bendi einnig á að það er alls ekki svo dýrt að hringja í GSM númerinn okkar +46 736484078 og +46 736484079 ef þið eruð alveg að farast.






við hlökkum mikið til að hitta ykkur, sérstaklega Freyju þar sem hún hefur sennilega stækkað og breyst mest.
kveðja Margrét