Heim > Skólamál, Stelpurnar, Veðrið > Kominn í kuldann í Lundi

Kominn í kuldann í Lundi

Eftir frábæra ferð til Íslands þar sem ég hitti fjölskylduna m.a. í þorrablóti og skírninni hennar Katrínar Birtu, þá er ég kominn aftur til Lundar.  Hér geisar um þessar mundir sögulegt frost og var t.d. -13 í nótt að mér er sagt en ég var sjálfur sofandi og ekki að taka skeytin.  Það er allavega bara föðurlandið sem virkar þegar svona ber við og maður þarf að hjóla á leikskólann og í skólann í gaddinum.  Freyja er svo að byrja á nýju deildinni sinni í leikskólanum og gengur auðvitað bara voða vel.  Birna er enn á Íslandi því það er frí í skólanum hennar þessa vikuna, svokallað sport-lov.  Það er hinsvegar ekki uppi á teningnum í hinum skólunum okkar og mikð að gera um þessar mundir í náminu hjá Helgu og mér.  

Categories: Skólamál, Stelpurnar, Veðrið Tags:
  1. Margrét
    19. febrúar 2009 á 17:49 | #1

    veriði nú dugleg að klæða ykkur vel í frostinu, hér er bara slyddusnjór og hiti rétt yfir frostmarki,
    kveðja úr firðinum. Margrét

  2. Halldóra
    20. febrúar 2009 á 19:05 | #2

    Takk fyrir síðast Gummi minn, þetta var frábær helgi.
    Vonandi fer að hlýna hjá ykkur, samt flott að taka myndir í miklu frosti. knús og kossar á Freyju Björk mína.
    kveðja
    Halldóra

  1. Engin trackback enn.