Heim > Ferðalög, Heimsóknir, Skólamál, Stelpurnar > Langt er um liðið

Langt er um liðið

Já það er aldeilis kominn tími síðan ég sló hér síðast inn færslu, ástæðan er jú m.a. sú að maður smá tappar þessu af sér á FaceBook-inni í formi ör-blogga.  Annars er það helst að frétta héðan að ég er búinn að fara í næst síðustu prófatörnina mína í LTH og þreytti í þetta sinn tvö próf og vona að það hafi gengið þokkalega. Á meðan var Helga með stelpurnar á Íslandi og því “auðvelt” að einbeita sér að lestrinum. En svona til að gera það aðeins flóknara fékk ég mér nýjan síma og það fór svakalegur tími í að fikta í honum enda alveg frábær græja með myndavél, tónlistarspilara, WLAN, GPS og snertiskjá og fullt fullt fullt af forritum og leikjum til að hamast í.

Núna eru stelpurnar svo komnar aftur, ég byrjaður á nýrri önn þar sem ég tek síðasta áfangann minn ásamt því að vera í verkefnakúrs sem klárast einnig í vor.  Eftir það er svo bara verkefnið mikla og ritgerð og er ég nú þegar byrjaður að vinna í að landa verkefni og er t.d. að fara  með leiðbeinendanum mínum honum Gunnari á fund á miðvikudaginn í Landskrona hjá fyrirtæki sem nefnist Regin og er framleiðandi á sjálfvirknibúnaði.  Ef allt gengur eftir vona ég að ég geti jafnvel byrjað strax í sumar að vinna að þessu og lagt þá aðeins meira í þetta og verið búin fyrir áramót.

Þann 2. apríl erum við Freyja og Birna svo að koma til Íslands og stefnum við Freyja að því að vera í sveitinni okkar í u.þ.b. tvær vikur að njóta lífsins í skagfirsku sveitalofti og fara á tónleika með kórnum hennar Karenar.  Eins verðum við eitthvað í rvk. svo að ef einhverjir hafa áhuga á að hitta okkur þá er um að gera að fara að leggja inn pöntun.

Að svo mæltu held ég að ég láti þessu lokið hér í kvöld.

  1. Halldóra
    25. mars 2009 á 15:25 | #1

    Við erum líka farinn að telja niður, hlökkum til að sjá ykkur:)

    kveðja
    Halldóra og co.

  2. 31. mars 2009 á 16:14 | #2

    Það var mikið að þú skrifar eitthvað hér….ert full latur við það vinur. Annars gaman að lesa hvað þetta gengur vel hjá ykkur þarna. Vonandi að þú landir þessu hjá Regin svo þú getir hafið lokakaflann á annars löngum og góðum námsferli.

    p.s. til hamingju með símann, ekta námsmannasími:)

    Kveðja frá Karlsruhe!

  3. Margrét
    31. mars 2009 á 18:40 | #3

    við hlökkum öll mikið til að sjá ykkur, kveðja úr firðinum,
    Margrét.

  1. Engin trackback enn.