Sveitasæla
Já komin er ég í átthagana og alltaf er það jafn gott. Eftir nokkra daga á suðurlandi skellti ég mér norður og hirti upp þau börn á leiðinni sem tilheira mér. Karen var að syngja á tónleikum á Blönduósi þegar við komum norður svo það var komið við þar og svo skuttlast á Skagaströnd í gær að syngja enn meir. Í dag eru svo lokatónleikar Draumaraddanna á Sauðárkrók og ætli ég sendi ekki bara ömmuna og frænkur með í þetta sinn.
Hér er svo verið að taka í gegn neðri hæðina, búið að setja parkett, verið að endurnýja allar raflagnir og eins á að sletta smá málningu á veggina svo það fer nú að verða ansi fínt hér hjá okkur.
Frá Svíþjóð er það svo að frétta að ég er kominn með verkefni hjá Regin og byrja þar í júní og er gríðarlega spenntur að fara að vinna að þessu lokaverkefni mínu
Bestu kveðjur úr fegursta firði heims.






Síðustu athugasemdir