Heim > Fjölskylda, Hestar, Myndir, Veðrið > Sveitapiltsins draumur

Sveitapiltsins draumur

Ferhyrnt fé Sjaldan hefur sveitin mín skartað eins góðu veðri jafn marga daga í röð og tel ég þetta þakklætisvott guðanna við komu mína á heimaslóðir.  Í tæpa viku hef ég spásserað um á stuttbuxum og hlýrabol í 20 stiga hita og sól og unnið í bændabrúnkunni sem aldrei fyrr.  Við erum búin að vera að sjæna til í sveitinni, mála útihús og skemmu og gera klárt fyrir fjölskyldumót sem verður hér haldið helgina 17. – 19. júlí.  Í dag kemur svo hún Freyja litla Björk í sveitina og þá verður nú glatt á hjalla og líklegt að við förum í sund með ömmu strump.
Ég hef síðan verið nokkuð duglegur að taka myndir og moka inn á Flickr og stendur ekki annað til en að halda því áfram.  Að lokum vil ég svo óska elskulegum bróður mínum til hamingju með árangur á nýafstöðnu fjórðungsmóti hestamanna á Kaldármelum en þar hafnaði stóðhesturinn Kiljan sem Benni hefur verið að þjálfa í efsta sæti í flokki 5 vetra stóðhesta.

Gummi, sveitapiltur !!

  1. Halldóra
    12. júlí 2009 á 22:23 | #1

    Hlökkum til að sjá ykkur í sveitinni á morgun og vonandi að veðrið verði áfram gott:)
    kv. HB

  1. Engin trackback enn.