Heim > Ferðalög, Fjölskylda, Hestar, Myndir, Stelpurnar > Já ég er hér enn…..

Já ég er hér enn…..

Fjölskylda á ferð um miðja 18.öld ? ….og aftur kominn norður í land, þar sem sólin brosir alltaf við manni, jafnvel þótt hún skýni ekki.  Ég kom norður í gær með þrjár dömur með mér, eftir vikudvöl á suðurlandi, en þangað fór ég fljótlega eftir hið margrómaða fjölskyldumót okkar hér á Stóra-Vatnsskarði sem var eins og þeir segja…….legendary. Þar sem ég var svo svakalega upptekin við að framfylgja brennuleyfi því sem okkur áskotnaðist frá yfirvöldum hér í sveit, náði ég ekki að taka neitt af myndum á mótinu en það voru nú einhverjir aðrir duglegri og eru búnir að smella þessu hér og þar inn á facebook.  Núna erum við í augnablikinu með flatt á nokkrum stykkjum og vonumst til að ná þessu fljótlega eftir að það hættir að rigna.  Við höfum semsagt komist að því að faðir minn sem vitað var að þjáðist af smalabrjálæði á háu stigi er með vott af heyskaps-brjálæði og sló því þrátt fyrir nokkuð afgerandi rigningarspá, sennilega einungis til að storka almættinu og sjá hversu merkilegan sess hann hafi hjá honum eftir áralangan söngferil í kirkjukórnum.  Við vonum því að drottni hafi, fram að þessu, líkað við bassasöng föður míns og heyið hrekist ekki mikið hjá okkur.BRK

Framundan er svo auðvitað verslunarmannahelgin sem einkennist jú af aukinni verslun hjá smákaupmönnum og er reglan oftast sú að því smærri sem þeir eru því meiri er salan.  Ekki hafa nú verið gerð nein plön fyrir helgina en þó er aldrei að vita hvað manni dettur í hug að gera en helgina þar á eftir ætlum við svo að halda bekkjarmót árgangs 1977 í Varmahlíðarskóla og þá verður sko fjör, maður lifandi.  Það hittir nú einnig svo vel á að daginn eftir fer ég suður og tveim dögum síðar af landi brott svo það er ekki ólíklegt að maður taki upp á einhverri vitleysu sem ég get treyst að verið fallinn í gleymsku í kringum áramót.

En að svo stöddu er rétt að hætta að masa um framtíðina og reyna að lifa nútíðinni og fara að sofa, ég býð því góða nótt og lofa frekari fréttum innan skamms.

Gummi….alltaf að gera eitthvað af sér.

  1. Engin ummæli enn
  1. Engin trackback enn.