Af sýkingum og öðru spennandi stöffi
Úti er sól og sumar og ljóst að haustið er víðs fjarri okkur hér í Lundi, það er því frekar fúlt að þurfa að hanga inni með eitthvað helvítis slen. Á mánudaginn komu þau til mín, Pabbi, Mamma, Grétar og Erna og án þess að ég geti beint tengt það við komu þeirra þá þegar um kvöldið fann ég fyrir óþægindum í vinstri olnboga og spáði svosem ekki meir í því. Daginn eftir var hann hinsvegar orðin stokkbólginn og rauður og ég hundslappur en sem sönnum sveitamanni sæmir beit ég á jaxlinn og fór í skoðunarferð um Lund með gestunum en þá um kvöldið var ég orðin verulega slappur. Gærdagurinn fór því þannig að ég lá sofandi heima fram á miðjan dag en gestirnir spókuð sig um í Malmö en um kvöldið komu svo Ási, Pia og börn við hjá mér en þau eru á leið yfir til Danmerkur þar sem þau munu taka Norrænu heim til Íslands. Í morgunn ákvað ég svo að fara til læknis og láta líta á olnbogann og eftir að hafa eytt morgninum á heilsugæslunni fékk ég tíma hjá lækni sem sagði mér að ég væri með sýkingu í hendinni og smellti kallinum á sýklalyf. Ég vona því að mér fari nú að batna og geti farið í smá bíltúr með gestunum á morgunn, en þá er planið að kíkja í Smálönd og Båstad og krúsa eitthvað um. Laugardagurinn er svo planaður í heimsókn til fjölskylduvinar í Kristianstad og á sunnudeginum fara svo gestirnir yfir til Köben, en þau eiga flug heim á mánudeginum.
Í næstu viku fer svo allt á fullt í verkefninu en þá er fundur á þriðjudegi og svo skoðunarferð til Vaxjö, að líta á ljósastýringar í vöruhóteli, með mönnum frá Regin.
Gummi Ben……….sjúklega sýktur.





Vonandi fer þér nú að batna þessi veikindi og skemmtið ykkur vel í Smálöndum, bw á ekki Emil heima þar?
Bið að heilsa gestunum.
kv. HB
Kallinn kominn með svona slæman tennisolnboga, ekki vissi ég að þú stundaðir tennis. Annars vona ég að þú hressist sem fyrst og mætir ferskur í nýja verkefnið.
Takk takk bæði tvö, ég er ansi sleipur í tennis sko
Jújú Emil var reyndar lokaður inni í smiðjukofanum þegar við renndum í gegnum marílund en fín ferð engu að síður !!!