Tónleikar ársins
Af því að ég er nýbúinn að borga fyrir að halda þessari síðu opinni næstu árin og veit aldrei almennilega hvað ég á að setja inn og ef ég slysast til þess, hvort einhver les þetta þá ákvað ég að setja saman lista yfir þá tónlistarmenn sem ég hef séð á árinu í máli og myndum. Ég er þá aðalega að tala um þá sem mig langaði virkilega að sjá en ekki einhver afstyrmi sem annaðhvort fengu að hita upp eða ég labbaði óvart fram hjá sviðinu þegar þeir voru að nýðast á því sem þeir kalla tónlist.
En nóg af masi byrjum á því sem ég sá síðast en það voru þær tvíburasysturnar Tegan og Sara frá Kanada:
Þær spiluðu í Mejeriet í Lundi og þetta voru hörku tónleikar. Sá sem hitaði upp fyrir þær var bandaríkjamaður sem kallar sig Astronautalis og var bara nokkuð hress gaur sem er allt í lagið að hlusta aðeins á.
Þar áður fór ég á Stora Vega í Kaupmannahöfn og sá þá hressu gaura í hljómsveitinni Rise Against
Svakalega þétt band sem hélt áhorfendum algjörlega við efnið og fyrir mitt leiti enduðu þessir tónleikar virkilega með stæl, þar sem ég var rifinn upp og crowd-surfaði yfir salinn og niður fyrir frama sviðið…..mjög hressandi
Á undan þeim voru einir af þeim tónleikum sem virkilega stand upp úr því sem ég hef á nokkur tímann séð, en það voru tónleikar í Hovet, Stokkhólmi með MUSE
Klárlega gæsahúð ársins að sjá þessa risavöxnu kubba og stubba spila.
Næstir á undan þeim voru frændur mínir frá Noregi, þeir Erlend Öye og Erik Glambek Böe, en saman mynda þeir bandið Kings of Convenience. Tónleikarnir voru í Mejeriet í Lundi og virkilega góðir
Upphitunar númerið þeirra þetta kvöld var Bart nokkur Davinport, áhugaverður tónlistarmaður sem er nú búinn að vera að í einhvern tíma
Virkilega gott kvöld í mjólkurbúinu og við Júlíus skemmtum okkur mjög vel. Þegar þarna er komið sögu kem ég að hápunkti ársins ef svo má segja því það er WayOutWest tónlistarhátíðin í Gautaborg. Ég fór þarna í nokkuð stórum hóp íslendinga og ekki vantaði atriðin á hátíðina, frekar tíma til að sjá allt sem var í boði. Ég man nú ekki alveg röðin rétta en ég byrjaði allavega á því að sjá Timo Räisänen
Skemmtilegur fír sem er ansi mikið í því að gera undarlegar ábreiður á verk annara. Ef svo var strunsað á næsta svið að sjá snillingana í Bon Iver
Frábærir tónlistarmenn og tónleikarnir þeirra stóðu lengi uppi sem besta atriði hátíðarinnar. En það var svo sannarlega margt á WOW sem veitti samkeppni, eins og t.d. Florence and the machine
Gullfalleg og gríðarlega hæfileikarík ung kona. En það voru fleiri góðir eins og Beirut
Band of horses
Glasvegas
og töffararnir í Wolfmother
þessir er sko to cool for school. En svo var líka Anthony and the Jhonson með sinfóníuhljómsveit Gautaborgar
gríðarlega tilkomumikið þótt ekki væru allir í hópnum eins ánægðir með þetta atriði.
Þá er komið að bandinu sem ég var búinn að bíða í mörg ár eftir að sjá og þeir voru svo sannarlega ekki að valda mér vonbrigðum blessaðir. Ég er að tala um Alex Turner og félaga í Arctic Monkeys
Þeir spiluðu talsvert efni af Humbug, nýjasta disknum sínum en einnig gamalt og gott efni.
Tónlistarhátíðina Way Out West enduðu svo brjálæðingarnir í Teddybers………….og eins og má sjá á þessu vídeói frá tónleikunum var þetta lokalag alveg að gera sig
Geggjuð hátíð enduð með svakalegu lagi með enn svakalegri hljómsveit.
Þetta var tónleikaárið mitt í máli og (hreyfi)myndum og vona ég að þú hafir komist niður í þessa línu og jafnvel hlustað á eitthvað af því sem á leið þinni varð. Ég held ég sé ekki að gleyma neinum, en þá voru þeir bara ekki merkilegri en það





Síðustu athugasemdir