Úti er sól og sumar og ljóst að haustið er víðs fjarri okkur hér í Lundi, það er því frekar fúlt að þurfa að hanga inni með eitthvað helvítis slen. Á mánudaginn komu þau til mín, Pabbi, Mamma, Grétar og Erna og án þess að ég geti beint tengt það við komu þeirra þá þegar um kvöldið fann ég fyrir óþægindum í vinstri olnboga og spáði svosem ekki meir í því. Daginn eftir var hann hinsvegar orðin stokkbólginn og rauður og ég hundslappur en sem sönnum sveitamanni sæmir beit ég á jaxlinn og fór í skoðunarferð um Lund með gestunum en þá um kvöldið var ég orðin verulega slappur. Gærdagurinn fór því þannig að ég lá sofandi heima fram á miðjan dag en gestirnir spókuð sig um í Malmö en um kvöldið komu svo Ási, Pia og börn við hjá mér en þau eru á leið yfir til Danmerkur þar sem þau munu taka Norrænu heim til Íslands. Í morgunn ákvað ég svo að fara til læknis og láta líta á olnbogann og eftir að hafa eytt morgninum á heilsugæslunni fékk ég tíma hjá lækni sem sagði mér að ég væri með sýkingu í hendinni og smellti kallinum á sýklalyf. Ég vona því að mér fari nú að batna og geti farið í smá bíltúr með gestunum á morgunn, en þá er planið að kíkja í Smálönd og Båstad og krúsa eitthvað um. Laugardagurinn er svo planaður í heimsókn til fjölskylduvinar í Kristianstad og á sunnudeginum fara svo gestirnir yfir til Köben, en þau eiga flug heim á mánudeginum.
Í næstu viku fer svo allt á fullt í verkefninu en þá er fundur á þriðjudegi og svo skoðunarferð til Vaxjö, að líta á ljósastýringar í vöruhóteli, með mönnum frá Regin.
Gummi Ben……….sjúklega sýktur.
Eftir nokkra daga í borginni við sundin blá er nú hugurinn farinn að sækja í sveitaloftið og náði ég að svala þessari þörf nokkuð um helgina þegar ég fór austur í Kvisti og datt inn í reiðtúr með ferðaklúbbnum FAXE um sveitir suðurlands. Ég fór svo auðvitað að kíkja á Lukku-Láka og smellti af nokkrum römmum enda gullfallegt folald og á eftir að verða vinsæll. Á föstudaginn varð svo Freyja mín þriggja ára og er hún orðin mjög mikil dama, hætt að nota snuð og gaf hún fuglunum í Lundi öll snuðin sín !! Í gærkveldi fór ég svo að hitta Höllu og Lindu og við skelltum okkur svo aðeins í bæinn og hittum þar fleira skemmtilegt fólk og þar á meðal Val vin minn frá Hrauni og það var nú ekki lítið gaman að hitta kallinn eftir allavega hundrað ár. Dagurinn í dag var svo tekinn í það að gera ekki neitt nema að borða heima hjá Halldóru og svo skelltum við Jónsi okkur út að hlaupa í Laugardalnum og svo auðvitað í sund enda er það eitt af því sem maður hefur saknað hvað mest, sund.Á þriðjudag er svo stefnan sett á Stóra-Vatnsskarð og er nú kominn tími til að fara að koma sér þangað enda margt sem þarf að gera.
Gummi, alltaf á hlaupum
Ég var að lesa fyrir Freyju úr Vísnabókinni áður en hún fór að sofa og þá sá hún mynd af hrútshaus sem krumminn var að kroppa í, eins og segir jú í kvæðinu. Hún spyr mig þá: “er kindin dáin?”, og ég segi já, en þá vildi sú stutta auðvitað vita af hverju hrútskömmin væri dauð! Ég reyndi að bera mig fagmannlega að þessu og sagði: ” af því að það deyja allir á endanum” sem útskýrir náttúrulega á engann hátt þennan hrútshaus úti á miðju túni. Jæja áfram hélt Freyja:” ekki ég og ekki þú pabbi, við deyjum ekki!”, ég:” jújú, þegar við verðum orðin mjög gömul deyjum við líka, það deyja allir!” og þá sagði hún:” já við verðum þá bara kindur!”.
Síðustu athugasemdir