Safn

Safn fyrir flokkinn ‘Fjölmiðlar’

Pakk !

1. apríl 2009 Guðmundur Engin ummæli

Pakk pakk pakk og svo leggjum við í hann ! Við erum jú að skella okkur þrjú til landsins kalda í fyrramálið og við erum mjög spennt !  Ég fór með Gunnari leiðbeinanda mínum á fund með Regin í dag og það gekk mjög vel, Gunnar hældi mér í hástert og þeir voru bara nokkuð spenntir held ég.  Ég sagðist svo ætla að hugsa málið og láta þá vita í næstu viku hvort ég geti ekki bara tekið þetta að mér :)  Maður þarf náttúrulega að kanna hjá ÖLLUM hinum líka !!  

 Fór svo á einn annan gjörsamlega gagnslausan fund í dag og þega ég kom heim voru “allir” íslendingarnir úti í garði að leika með börnunum sínum enda mikið vor í lofti og notalegt að vera úti að spóka sig.

Jæja þá er ekki annað að gera en klára að pakka og fara að sofa :)  

Categories: Almennt, Ferðalög, Fjölmiðlar, Skólamál Tags:

Fjöldahandtökur í Lundi

1. desember 2008 Guðmundur Ein ummæli

Lögregla  í Lundi í suðurhluta Svíþjóðar handtók í dag 56 manns til að koma í veg fyrir átök milli hópa nýnasista og andstæðinga þeirra, sem stóðu fyrir mótmælaaðgerðum í borginni í dag.” (mbl.is)  En þó ótrúlegt megi teljast sluppum við alveg og því óþerfi að hafa áhyggjur af okkur :)  Það er hinsvegar alveg ótrúlegt að blaðamenn mbl.is finni sig knúna til að birta kort frá google-map til að sýna hvar þessi BORG sé nú staðsett í veröldinni….eins og það viti það ekki hvert mannsbarn.  Þetta hafði samt þau áhrif að ég fann mér ekki tíma til að setja inn myndirnar sem ég var búi að lofa og vonandi verður bragarbót á því á allra næstu dögum.

Categories: Almennt, Fjölmiðlar, Fréttir, Myndir Tags: