Já ef ekki nú þá aldrei, miðað við stöðu mála held ég að það sé nú kominn tími á smá færslu. Ég er nú mættur í Lundinn aftur eftir mjög svo ánægjulega, en stutta, ferð til Íslands. Sú ferð var nú heldur betur til fjár, því auk þess að hitta fallegustu stúlkur heims og skemmtilegustu fjölskyldu heims þá lánaðist mér að næla mér í vinnu. Um áramót mun ég hefja störf hjá Iðnaðartækni en það er fyrirtæki á sjálfvirkni-sviði bygginga og búnaðar. Ég mun þar taka þátt í að hann, forrita og setja upp stýringar í m.a. hússtjórnarkerfum, loftræstikerfum, hitastýringu og sundlaugarkerfum. Fyrirtækið er stórt smáfyrirtæki með aðeins tvo núverandi starfsmenn en góða verkefnastöðu og enginn sorti í framtíðinni þar á bæ. Af mastersverkefninu er það að frétta að ég er búinn að skrifa megnið af því efni sem verður í ritgerðinni og fer nú að vinna að verklegri framkvæmd hjá Regin í Landskrona og mun svo kynna herlegheitin um miðjan desember og í kjölfarið flytja heim í fjörið. En framundan er svo helgarferð til Stokkhólms þar sem ég ætla að berja augum meistarana í Muse.
Jæja þá er þetta allt saman komið á fullt hér í Lundi, göngustígarnir fullir að fólki sem er annaðhvort klætt eins og fávitar (ný-nemar í búningum ?? veit ekki meir) eða fólk sem starir í kringum sig eins og fávitar og veit ekkert hvert það á að fara. Á bókasafninu fjölgar andlitum dag frá degi og ég get ekki lengur sungið upphátt í þagnar-salnum. Ég er búinn að fara á tvo fundi með leiðbeinandanum í Regin og svo fórum við einnig í dagsferð til Vaxjö að kíkja á ljósastýringu í vöruhóteli á vegum Schenker flutningafyrirtækisins. Ég fór svo á föstudaginn og hitti hann Gunnar vin minn og leiðbeinanda hjá LTH og hann var bara hinn hressasti og hafði mestan áhuga á Lukku og Lukku-láka, en með brögðum náið ég aðeins að ræða verkefnið mitt. Þetta stefnir allavega í rétta átt og nú er bara að vera duglegur að skrifa og svo stefni ég á að kynna þeim í Regin mínar fyrstu niðurstöður í lok næstu viku.
Annars er bara búið að vera endalaust af matarboðum, gleði og gaman enda enn sumar í fólki hér um slóðir, 23 stiga hiti og samt er komin 1.sept. En það þýðir lítið að hugsa um það, nú er það bara loftkælingin á studicenter og skriftir !!!!
Jæja eins og margir vita nú þegar þá hófst dagurinn svo sannarlega með látum. Ég hrökk upp við það að það er sparkað duglega í mig eða rúmið, eða það hélt ég allavega. Eftir að hafa hent sænginni á gólfið og hlaupið eftir Freyju fattaði ég samt að þetta var jarðskjálfti. Það varð lítið um svefn eftir þetta þar sem Freyja var vöknuð og tók ekki í mál að vera að fara að sofa eftir svoa stuð. Klukkan átta var svo seinna prófið sem ég tók þetta haustið og í stuttu máli er því lokið og ekki orð um það meir. Það hefur svo verið fallið frá því að fjölskyldan fari til Florida um áramótin og þess í stað verður farið til Íslands sem er auðvitað engu síðra, ég hlakka allavega til að koma í sveitina mína sem allra fyrst og anda að mér skagfirsku sveitalofti. Í dag tók svo Freyja upp á því að vera lasin heima með smá hita og hósta og geri ég ráð fyrir að vera heima með henni á morgun en svo fer hún nú kanski á leikskóla svo ég geti farið að kaupa jólatré og pakka.Um síðustu helgi var svo Ásta systir í heimsókn hjá okkur og var það alveg frábært þrátt fyrir að það væri aðeis of mikið að gera í próflestri og ekki nógur tími til að sinna gestum, það er því vonandi að hún komi sem fyrst aftur í heimsókn. En framundan eru rólegheit hjá mér og smá jólaundirbúningur. Ég sendi svo öllum sem voru að klára próf eða eru alveg að fara að klára próf hamingjuóskir og ykkur hinum einnig bestu jólakveðjur frá Lundi, Gummi skjálfti.
Síðustu athugasemdir