….og aftur kominn norður í land, þar sem sólin brosir alltaf við manni, jafnvel þótt hún skýni ekki. Ég kom norður í gær með þrjár dömur með mér, eftir vikudvöl á suðurlandi, en þangað fór ég fljótlega eftir hið margrómaða fjölskyldumót okkar hér á Stóra-Vatnsskarði sem var eins og þeir segja…….legendary. Þar sem ég var svo svakalega upptekin við að framfylgja brennuleyfi því sem okkur áskotnaðist frá yfirvöldum hér í sveit, náði ég ekki að taka neitt af myndum á mótinu en það voru nú einhverjir aðrir duglegri og eru búnir að smella þessu hér og þar inn á facebook. Núna erum við í augnablikinu með flatt á nokkrum stykkjum og vonumst til að ná þessu fljótlega eftir að það hættir að rigna. Við höfum semsagt komist að því að faðir minn sem vitað var að þjáðist af smalabrjálæði á háu stigi er með vott af heyskaps-brjálæði og sló því þrátt fyrir nokkuð afgerandi rigningarspá, sennilega einungis til að storka almættinu og sjá hversu merkilegan sess hann hafi hjá honum eftir áralangan söngferil í kirkjukórnum. Við vonum því að drottni hafi, fram að þessu, líkað við bassasöng föður míns og heyið hrekist ekki mikið hjá okkur.
Framundan er svo auðvitað verslunarmannahelgin sem einkennist jú af aukinni verslun hjá smákaupmönnum og er reglan oftast sú að því smærri sem þeir eru því meiri er salan. Ekki hafa nú verið gerð nein plön fyrir helgina en þó er aldrei að vita hvað manni dettur í hug að gera en helgina þar á eftir ætlum við svo að halda bekkjarmót árgangs 1977 í Varmahlíðarskóla og þá verður sko fjör, maður lifandi. Það hittir nú einnig svo vel á að daginn eftir fer ég suður og tveim dögum síðar af landi brott svo það er ekki ólíklegt að maður taki upp á einhverri vitleysu sem ég get treyst að verið fallinn í gleymsku í kringum áramót.
En að svo stöddu er rétt að hætta að masa um framtíðina og reyna að lifa nútíðinni og fara að sofa, ég býð því góða nótt og lofa frekari fréttum innan skamms.
Eftir linnulaust sólskin og særlegheit í sveitinni ákváðum við Freyja að freist gæfunnar enn innar á fjöllum og fórum á laugardaginn inn í Kerlingarfjöll og hittum þar Magga, Sunnu og Krúttí-bolluna auk annara stór-skemmtilegra samferðafélaga þeirra. Í stuttu málið var þetta snilldar ferð í frábæru veðri og hrikalega gaman að hitta litlu fjölskylduna aftur. Litadýrðin í Karlingarfjöllum er með öllu ólýsanleg en ég gerði þó nokkrar tilraunir við að fanga hana inn á minniskubbinn í D400 og má sjá afrakstur undir Flickr-flipanum. Freyja svaf sína fyrstu nótt í tjaldi og kunni bara nokkuð vel við það og var komin á fætur um 7………sem var nú ansi snemma fyrir flesta enda sagði hún þegar hún rak nefið út í morgunsólina:”Það er enginn hér !” Næst á dagskrá er svo að leggja lokahönd á undirbúning fjölskyldumótsins hér á Vatnsskarði sem fram fer um næstu helgi.
Jæja það var þreytt en sæl dama sem sofnaði snuddulaus eftir mjög skemmtilegan “afmælisdag” og eins og Vaka vinkona hennar, með barbie dúkku í hendinni. Dagurinn byrjaði með því að við Karen gáfum henni Hello Kitty hlaupahjól og sú varð nú hissa, þrátt fyrir að hafa verið búin að biðja um þetta í marga mánuði. Eftir að hafa tekið skeifnasprettinn á nýja hlaupahjólinu um kjammann, skellti Freyja sér í lúr og svo hófst sjálft afmælið. Í stuttu málið var veðrið yndislegt, veitingarnar frábærar (takk Herborg og Jara), gestirnir skemmtilegir og afmælisdömurnar til fyrirmyndar í alla staði. Þegar leið á afmælið tætti Freyja sig svo úr skóm og sokkabuxum og valsaði um garðinn þangað til hún steig í kattarskít og angaði sem slíkur og var því fjarlægð fljótlega og heim í bað!! Eftir það var svo klárað að taka upp pakkana og meðal annars kom upp úr pakka hljóðnemi og statíf sem vakti mikla lukku enda búið að standa til lengi að kaupa svoleiðis handa litlu söngkonunni. Eftir nokkra tónleika, kvöldmat og sprell datt hún svo út af, snuddulaus, með það loforð frá föðurnum að fá hnetur og súkkulaðirúsínur strax í fyrramálið yfir góðri mynd með Línu, en það var búið að standa til að parkera öllum snuddum þegar hún yrði 3ára og það var sennilega í dag að hennar mati.
Á morgunn er svo planið að spássera um Malmö og líta m.a. á Tourning Torso turninn. Þangað til næst, lifið heil.
Síðustu athugasemdir