….og aftur kominn norður í land, þar sem sólin brosir alltaf við manni, jafnvel þótt hún skýni ekki. Ég kom norður í gær með þrjár dömur með mér, eftir vikudvöl á suðurlandi, en þangað fór ég fljótlega eftir hið margrómaða fjölskyldumót okkar hér á Stóra-Vatnsskarði sem var eins og þeir segja…….legendary. Þar sem ég var svo svakalega upptekin við að framfylgja brennuleyfi því sem okkur áskotnaðist frá yfirvöldum hér í sveit, náði ég ekki að taka neitt af myndum á mótinu en það voru nú einhverjir aðrir duglegri og eru búnir að smella þessu hér og þar inn á facebook. Núna erum við í augnablikinu með flatt á nokkrum stykkjum og vonumst til að ná þessu fljótlega eftir að það hættir að rigna. Við höfum semsagt komist að því að faðir minn sem vitað var að þjáðist af smalabrjálæði á háu stigi er með vott af heyskaps-brjálæði og sló því þrátt fyrir nokkuð afgerandi rigningarspá, sennilega einungis til að storka almættinu og sjá hversu merkilegan sess hann hafi hjá honum eftir áralangan söngferil í kirkjukórnum. Við vonum því að drottni hafi, fram að þessu, líkað við bassasöng föður míns og heyið hrekist ekki mikið hjá okkur.
Framundan er svo auðvitað verslunarmannahelgin sem einkennist jú af aukinni verslun hjá smákaupmönnum og er reglan oftast sú að því smærri sem þeir eru því meiri er salan. Ekki hafa nú verið gerð nein plön fyrir helgina en þó er aldrei að vita hvað manni dettur í hug að gera en helgina þar á eftir ætlum við svo að halda bekkjarmót árgangs 1977 í Varmahlíðarskóla og þá verður sko fjör, maður lifandi. Það hittir nú einnig svo vel á að daginn eftir fer ég suður og tveim dögum síðar af landi brott svo það er ekki ólíklegt að maður taki upp á einhverri vitleysu sem ég get treyst að verið fallinn í gleymsku í kringum áramót.
En að svo stöddu er rétt að hætta að masa um framtíðina og reyna að lifa nútíðinni og fara að sofa, ég býð því góða nótt og lofa frekari fréttum innan skamms.
Sjaldan hefur sveitin mín skartað eins góðu veðri jafn marga daga í röð og tel ég þetta þakklætisvott guðanna við komu mína á heimaslóðir. Í tæpa viku hef ég spásserað um á stuttbuxum og hlýrabol í 20 stiga hita og sól og unnið í bændabrúnkunni sem aldrei fyrr. Við erum búin að vera að sjæna til í sveitinni, mála útihús og skemmu og gera klárt fyrir fjölskyldumót sem verður hér haldið helgina 17. – 19. júlí. Í dag kemur svo hún Freyja litla Björk í sveitina og þá verður nú glatt á hjalla og líklegt að við förum í sund með ömmu strump.
Ég hef síðan verið nokkuð duglegur að taka myndir og moka inn á Flickr og stendur ekki annað til en að halda því áfram. Að lokum vil ég svo óska elskulegum bróður mínum til hamingju með árangur á nýafstöðnu fjórðungsmóti hestamanna á Kaldármelum en þar hafnaði stóðhesturinn Kiljan sem Benni hefur verið að þjálfa í efsta sæti í flokki 5 vetra stóðhesta.
….og auðvitað stóð íslenska þjóðin á öndinni þegar IcelandExpress vélin setti niður hjólin og það var ljóst að Guðmundur og hans fríða föruneyti var komið til landsins. Af einstakri kurteis heilsuðu suðurnesjin ferðalöngum með rigningarsudda og súld og flugfreyjan sagði mine dame og herre, velkomen till island, so nice to be home Síðan þá hefur nú ýmislegt verið brallað, fjölskyldan verið heimsótt í gríð og erg sem og vinir og kunningar og vona ég að það sé nú bara rétt að byrja. Í kvöld voru svo báðar stelpurnar hjá mér aftur og við höfðum það svo kósí að ég þarf sennilega að sofa ofan á snakkmylsnu í nótt, en hvað er ekki gert kvöldið fyrir afmæli til að hafa það nógu kósí ? Á morgunn verður svo örverpið mitt þriggja ára og fagnar deginum með móðurfólki sínu í Torfufellinu og er þá sennilega vikulöngu afmælisferli senn lokið!!
Framundan er svo áframhaldandi heimsóknir til vina og skildmenna, sveitadvöl, fjölskyldumót og mikið stuð í allt sumar Minni svo auðvitað á myndasíðurnar mínar sem munu vonandi gildna all svakalega í sumar þar sem Ísland er jú svo fótógenískt !!! Endum svo þessa færslu á tveggja lína eyðu til að minnast…………
Síðustu athugasemdir