Jæja þá er þetta allt saman komið á fullt hér í Lundi, göngustígarnir fullir að fólki sem er annaðhvort klætt eins og fávitar (ný-nemar í búningum ?? veit ekki meir) eða fólk sem starir í kringum sig eins og fávitar og veit ekkert hvert það á að fara. Á bókasafninu fjölgar andlitum dag frá degi og ég get ekki lengur sungið upphátt í þagnar-salnum. Ég er búinn að fara á tvo fundi með leiðbeinandanum í Regin og svo fórum við einnig í dagsferð til Vaxjö að kíkja á ljósastýringu í vöruhóteli á vegum Schenker flutningafyrirtækisins. Ég fór svo á föstudaginn og hitti hann Gunnar vin minn og leiðbeinanda hjá LTH og hann var bara hinn hressasti og hafði mestan áhuga á Lukku og Lukku-láka, en með brögðum náið ég aðeins að ræða verkefnið mitt. Þetta stefnir allavega í rétta átt og nú er bara að vera duglegur að skrifa og svo stefni ég á að kynna þeim í Regin mínar fyrstu niðurstöður í lok næstu viku.
Annars er bara búið að vera endalaust af matarboðum, gleði og gaman enda enn sumar í fólki hér um slóðir, 23 stiga hiti og samt er komin 1.sept. En það þýðir lítið að hugsa um það, nú er það bara loftkælingin á studicenter og skriftir !!!!
Gummi Ben…..alltaf skólastrákur.
Pakk pakk pakk og svo leggjum við í hann ! Við erum jú að skella okkur þrjú til landsins kalda í fyrramálið og við erum mjög spennt ! Ég fór með Gunnari leiðbeinanda mínum á fund með Regin í dag og það gekk mjög vel, Gunnar hældi mér í hástert og þeir voru bara nokkuð spenntir held ég. Ég sagðist svo ætla að hugsa málið og láta þá vita í næstu viku hvort ég geti ekki bara tekið þetta að mér
Maður þarf náttúrulega að kanna hjá ÖLLUM hinum líka !!
Fór svo á einn annan gjörsamlega gagnslausan fund í dag og þega ég kom heim voru “allir” íslendingarnir úti í garði að leika með börnunum sínum enda mikið vor í lofti og notalegt að vera úti að spóka sig.
Jæja þá er ekki annað að gera en klára að pakka og fara að sofa
Já það er aldeilis kominn tími síðan ég sló hér síðast inn færslu, ástæðan er jú m.a. sú að maður smá tappar þessu af sér á FaceBook-inni í formi ör-blogga. Annars er það helst að frétta héðan að ég er búinn að fara í næst síðustu prófatörnina mína í LTH og þreytti í þetta sinn tvö próf og vona að það hafi gengið þokkalega. Á meðan var Helga með stelpurnar á Íslandi og því “auðvelt” að einbeita sér að lestrinum. En svona til að gera það aðeins flóknara fékk ég mér nýjan síma og það fór svakalegur tími í að fikta í honum enda alveg frábær græja með myndavél, tónlistarspilara, WLAN, GPS og snertiskjá og fullt fullt fullt af forritum og leikjum til að hamast í.
Núna eru stelpurnar svo komnar aftur, ég byrjaður á nýrri önn þar sem ég tek síðasta áfangann minn ásamt því að vera í verkefnakúrs sem klárast einnig í vor. Eftir það er svo bara verkefnið mikla og ritgerð og er ég nú þegar byrjaður að vinna í að landa verkefni og er t.d. að fara með leiðbeinendanum mínum honum Gunnari á fund á miðvikudaginn í Landskrona hjá fyrirtæki sem nefnist Regin og er framleiðandi á sjálfvirknibúnaði. Ef allt gengur eftir vona ég að ég geti jafnvel byrjað strax í sumar að vinna að þessu og lagt þá aðeins meira í þetta og verið búin fyrir áramót.
Þann 2. apríl erum við Freyja og Birna svo að koma til Íslands og stefnum við Freyja að því að vera í sveitinni okkar í u.þ.b. tvær vikur að njóta lífsins í skagfirsku sveitalofti og fara á tónleika með kórnum hennar Karenar. Eins verðum við eitthvað í rvk. svo að ef einhverjir hafa áhuga á að hitta okkur þá er um að gera að fara að leggja inn pöntun.
Að svo mæltu held ég að ég láti þessu lokið hér í kvöld.
Síðustu athugasemdir