Safn

Safn fyrir flokkinn ‘Tónlist’

Tónleikar ársins

26. nóvember 2009 Guðmundur Ein ummæli

Af því að ég er nýbúinn að borga fyrir að halda þessari síðu opinni næstu árin og veit aldrei almennilega hvað ég á að setja inn og ef ég slysast til þess, hvort einhver les þetta þá ákvað ég að setja saman lista yfir þá tónlistarmenn sem ég hef séð á árinu í máli og myndum.  Ég er þá aðalega að tala um þá sem mig langaði virkilega að sjá en ekki einhver afstyrmi sem annaðhvort fengu að hita upp eða ég labbaði óvart fram hjá sviðinu þegar þeir voru að nýðast á því sem þeir kalla tónlist.

En nóg af masi byrjum á því sem ég sá síðast en það voru þær tvíburasysturnar Tegan og Sara frá Kanada:

Þær spiluðu í Mejeriet í Lundi og þetta voru hörku tónleikar.  Sá sem hitaði upp fyrir þær var bandaríkjamaður sem kallar sig Astronautalis og var bara nokkuð hress gaur sem er allt í lagið að hlusta aðeins á.

Þar áður fór ég á Stora Vega í Kaupmannahöfn og sá þá hressu gaura í hljómsveitinni Rise Against

Svakalega þétt band sem hélt áhorfendum algjörlega við efnið og fyrir mitt leiti enduðu þessir tónleikar virkilega með stæl, þar sem ég var rifinn upp og crowd-surfaði yfir salinn og niður fyrir frama sviðið…..mjög hressandi :)

Á undan þeim voru einir af þeim tónleikum sem virkilega stand upp úr því sem ég hef á nokkur tímann séð, en það voru tónleikar í Hovet, Stokkhólmi með MUSE

Klárlega gæsahúð ársins að sjá þessa risavöxnu kubba og stubba spila.
Næstir á undan þeim voru frændur mínir frá Noregi, þeir Erlend Öye og Erik Glambek Böe, en saman mynda þeir bandið Kings of Convenience. Tónleikarnir voru í Mejeriet í Lundi og virkilega góðir

Upphitunar númerið þeirra þetta kvöld var Bart nokkur Davinport, áhugaverður tónlistarmaður sem er nú búinn að vera að í einhvern tíma

Virkilega gott kvöld í mjólkurbúinu og við Júlíus skemmtum okkur mjög vel. Þegar þarna er komið sögu kem ég að hápunkti ársins ef svo má segja því það er WayOutWest tónlistarhátíðin í Gautaborg. Ég fór þarna í nokkuð stórum hóp íslendinga og ekki vantaði atriðin á hátíðina, frekar tíma til að sjá allt sem var í boði. Ég man nú ekki alveg röðin rétta en ég byrjaði allavega á því að sjá Timo Räisänen

Skemmtilegur fír sem er ansi mikið í því að gera undarlegar ábreiður á verk annara. Ef svo var strunsað á næsta svið að sjá snillingana í Bon Iver

Frábærir tónlistarmenn og tónleikarnir þeirra stóðu lengi uppi sem besta atriði hátíðarinnar. En það var svo sannarlega margt á WOW sem veitti samkeppni, eins og t.d. Florence and the machine

Gullfalleg og gríðarlega hæfileikarík ung kona. En það voru fleiri góðir eins og Beirut

Band of horses

Glasvegas

og töffararnir í Wolfmother

þessir er sko to cool for school. En svo var líka Anthony and the Jhonson með sinfóníuhljómsveit Gautaborgar

gríðarlega tilkomumikið þótt ekki væru allir í hópnum eins ánægðir með þetta atriði.
Þá er komið að bandinu sem ég var búinn að bíða í mörg ár eftir að sjá og þeir voru svo sannarlega ekki að valda mér vonbrigðum blessaðir. Ég er að tala um Alex Turner og félaga í Arctic Monkeys

Þeir spiluðu talsvert efni af Humbug, nýjasta disknum sínum en einnig gamalt og gott efni.
Tónlistarhátíðina Way Out West enduðu svo brjálæðingarnir í Teddybers………….og eins og má sjá á þessu vídeói frá tónleikunum var þetta lokalag alveg að gera sig

Geggjuð hátíð enduð með svakalegu lagi með enn svakalegri hljómsveit.

Þetta var tónleikaárið mitt í máli og (hreyfi)myndum og vona ég að þú hafir komist niður í þessa línu og jafnvel hlustað á eitthvað af því sem á leið þinni varð.  Ég held ég sé ekki að gleyma neinum, en þá voru þeir bara ekki merkilegri en það :)

Categories: Almennt, Tónlist Tags: ,

Mál að tjá sig aðeins

22. október 2009 Guðmundur Ein ummæli

Já ef ekki nú þá aldrei, miðað við stöðu mála held ég að það sé nú kominn tími á smá færslu.  Ég er nú mættur í Lundinn aftur eftir mjög svo ánægjulega, en stutta, ferð til Íslands.  Sú ferð var nú heldur betur til fjár, því auk þess að hitta fallegustu stúlkur heims og skemmtilegustu fjölskyldu heims þá lánaðist mér að næla mér í vinnu.  Um áramót mun ég hefja störf hjá Iðnaðartækni en það er fyrirtæki á sjálfvirkni-sviði bygginga og búnaðar.  Ég mun þar taka þátt í að hann, forrita og setja upp stýringar í m.a. hússtjórnarkerfum, loftræstikerfum, hitastýringu og sundlaugarkerfum.  Fyrirtækið er stórt smáfyrirtæki með aðeins tvo núverandi starfsmenn en góða verkefnastöðu og enginn sorti í framtíðinni þar á bæ.  Af mastersverkefninu er það að frétta að ég er búinn að skrifa megnið af því efni sem verður í ritgerðinni og fer nú að vinna að verklegri framkvæmd hjá Regin í Landskrona og mun svo kynna herlegheitin um miðjan desember og í kjölfarið flytja heim í fjörið.  En framundan er svo helgarferð til Stokkhólms þar sem ég ætla að berja augum meistarana í Muse.

Sveitasæla

8. apríl 2009 Guðmundur Engin ummæli

Já komin er ég í átthagana og alltaf er það jafn gott. Eftir nokkra daga á suðurlandi skellti ég mér norður og hirti upp þau börn á leiðinni sem tilheira mér.  Karen var að syngja á tónleikum á Blönduósi þegar við komum norður svo það var komið við þar og svo skuttlast á Skagaströnd í gær að syngja enn meir.  Í dag eru svo lokatónleikar Draumaraddanna á Sauðárkrók og ætli ég sendi ekki bara ömmuna og frænkur með í þetta sinn.

Hér er svo verið að taka í gegn neðri hæðina, búið að setja parkett, verið að endurnýja allar raflagnir og eins á að sletta smá málningu á veggina svo það fer nú að verða ansi fínt hér hjá okkur.

Frá Svíþjóð er það svo að frétta að ég er kominn með verkefni hjá Regin og byrja þar í júní og er gríðarlega spenntur að fara að vinna að þessu lokaverkefni mínu :)

Bestu kveðjur úr fegursta firði heims.

Categories: Almennt, Ferðalög, Stelpurnar, Tónlist Tags: