Eftir frábæra ferð til Íslands þar sem ég hitti fjölskylduna m.a. í þorrablóti og skírninni hennar Katrínar Birtu, þá er ég kominn aftur til Lundar. Hér geisar um þessar mundir sögulegt frost og var t.d. -13 í nótt að mér er sagt en ég var sjálfur sofandi og ekki að taka skeytin. Það er allavega bara föðurlandið sem virkar þegar svona ber við og maður þarf að hjóla á leikskólann og í skólann í gaddinum. Freyja er svo að byrja á nýju deildinni sinni í leikskólanum og gengur auðvitað bara voða vel. Birna er enn á Íslandi því það er frí í skólanum hennar þessa vikuna, svokallað sport-lov. Það er hinsvegar ekki uppi á teningnum í hinum skólunum okkar og mikð að gera um þessar mundir í náminu hjá Helgu og mér.
Jæja þá er maður aftur kominn á klakann og alltaf er nú jafn notalegt að koma heim. Þó svo að landið hafi heilsað mér með heldur hressilegum hætti, roki, snjókomu og nú rigningu þá er þetta nú einmitt hluti af því sem maður sakanar. Í dag er svo stefnan tekin á að vera í Ölfusinu við ýmist dútl innandyra en á morgun er það svo þorrablót hjá fjölskyldunni og þá kemur Karen mín í bæinn með pabba og mömmu. Snúlla litla frænka mín fær svo nafn á sunndaginn og hefur mér verið veittur sá heiður að vera skýrnarvottur hjá henni
Já það er ekki svo að það sé ekki ærinn ástæða til að skrifa hér smá færslu þegar bróðir minn og svilkona eiga afmæli í dag og á morgun verður systurdóttir mín tvítug. Við óskum þeim auðvitað til hamingju með þessa áfanga og fögnum með þeim í huganum. Af okkur er það annars helst að frétta að hér hefur lagst að vetur og minnir bara stundum á okkar elskulegu heimaslóðir. Það er búin að vera þetta 1-3 stiga frost og smá mjöll yfir svo það hefur nú verið erfitt stundum að hjóla en engin slys á fólki samt. Skólinn er kominn á sinn eðlilega hraða og oftar en ekki þarf að fara aftur í skólann eftir kvöldmat til að reyna að redda kæruleysi fyrri vikna. Það styttist nú líka ansi mikið í jólin og enn sem komið hefur aðeins sú íraska staðfest sig í hátíðarkvöldverð hjá okkur á aðfangadagskvöld en við erum enn með opið boð til handa völdum einstaklingum
Ég lofa svo að setja inn myndir um næstu helgin af okkur hérna, svona rétt til að minni ykkur á hvernig við lítum út.
Síðustu athugasemdir