Safn

Safn fyrir flokkinn ‘Veikindi’

Af sýkingum og öðru spennandi stöffi

20. ágúst 2009 Guðmundur 3 ummæli

Úti er sól og sumar og ljóst að haustið er víðs fjarri okkur hér í Lundi, það er því frekar fúlt að þurfa að hanga inni með eitthvað helvítis slen.  Á mánudaginn komu þau til mín, Pabbi, Mamma, Grétar og Erna og án þess að ég geti beint tengt það við komu þeirra þá þegar um kvöldið fann ég fyrir óþægindum í vinstri olnboga og spáði svosem ekki meir í því.  Daginn eftir var hann hinsvegar  orðin stokkbólginn og rauður og ég hundslappur en sem sönnum sveitamanni sæmir beit ég á jaxlinn og fór í skoðunarferð um Lund með gestunum en þá um kvöldið var ég orðin verulega slappur.  Gærdagurinn fór því þannig að ég lá sofandi heima fram á miðjan dag en gestirnir spókuð sig um í Malmö en um kvöldið komu svo Ási, Pia og börn við hjá mér en þau eru á leið yfir til Danmerkur þar sem þau munu taka Norrænu heim til Íslands.  Í morgunn ákvað ég svo að fara til læknis og láta líta á olnbogann og eftir að hafa eytt morgninum á heilsugæslunni fékk ég tíma hjá lækni sem sagði mér að ég væri með sýkingu í hendinni og smellti kallinum á sýklalyf. Ég vona því að mér fari nú að batna og geti farið í smá bíltúr með gestunum á morgunn, en þá er planið að kíkja í Smálönd og Båstad og krúsa eitthvað um. Laugardagurinn er svo planaður í heimsókn til fjölskylduvinar í Kristianstad og á sunnudeginum fara svo gestirnir yfir til Köben, en þau eiga flug heim á mánudeginum.

Í næstu viku fer svo allt á fullt í verkefninu en þá er fundur á þriðjudegi og svo skoðunarferð til Vaxjö, að líta á ljósastýringar í vöruhóteli, með mönnum frá Regin.

Gummi Ben……….sjúklega sýktur.

Bongó blíða

26. apríl 2008 Guðmundur Engin ummæli

Þá er maður loksins að skríða saman eftir enn eina pestina og í dag var loksins morgunógleðin farin, spurning hvort maður sé kanski óléttur en það er jú voða mikið í tísku hér um þessar mundir.  Við Freyja vorum allavega duglega að vera úti í góða veðrinu í dag og einbeita okkur að því að sakna ekki mömmu (aðalega fólgið í því að tala ekki um hana eða við hana :) ).  Í kvöld fíruðum við svo upp í grillinu sem meistari Siggi arfleiddi okkur af og smelltum nokkrum kjötsneiðum á, afraksturinn algjör snilld og alveg frábært að langa aftur í mat !!  Það spáir svo enn betra veðri á morgun svo við verðum bara áfram út við og sinnum ekkert heimilsstörfum (skilaboð til húsfreyjunnar).

Karen Ásta var svo að segja mér frá bloggsíðunni sinni www.karenasta.bloggar.is og verður gamana að fylgjast með henni þar :) Núna er hún líka komin með myndavél sem við gáfum henni í afmælisgjöf og getur sett myndir inn á síðuna sína. 

Helmings fækkun

24. apríl 2008 Guðmundur Ein ummæli

 Nú erum við bara tvö í kotinu ég og Freyja, því Helga og Birna eru á leiðinni til Íslands í þessum "töluðum" orðum.  Helga þurfti að fara of fylgja ská-frænku sinni til grafar og Birna fór með til að hitta pabba sinn.  Ég held bara að Freyja hafi alveg fattað hvað væri að gerast því hún varð ægilega lítil og grét í fanginu á mömmu sinni rétt áður en að þær fóru, þrátt fyrir að hún hafi svo haldið því fram við mig stuttu seinna að þær hafðu farið að hitta Goyu.  Ég er núna að reyna að rífa mig upp úr kvefpest og viðbjóði í hundraðasta sinn síðan við fluttum hérna út og er orðin vægast sagt leiður á þessu. Það er þó bót í máli að það er farið að hlýna þokkalega eins og sést á myndinni hér að neðan sem er spá fyrir næstu tvo daga og á sunnudaginn er svo spáð 17 stiga hita en reyndar skýjuðu.   Við Freyja ættu þó eitthvað að geta leikið okkur úti í sólinni um helgina og það er meira að segja búið að bera grillið og garðhúsgögnin upp á svalir :)

 

 

Categories: Ferðalög, Fjölskylda, Stelpurnar, Veikindi Tags: