Sunnudagsmorgunn og sólin situr við borðið……

23. ágúst 2009 Guðmundur Engin ummæli

Skåne og gestirnir farnir eftir ótrúlega notalega daga hér í Lundi.  Eftir að hafa sýnt þeim það helsta sem Lundur hefur upp á að bjóða og hvernig svínaflensa fer með mann þá fór ég með þeim í bæinn Kosta í Smálöndum en hann er jú annar bærinn af tvíeykinu Kosta Boda og þar var nú nóg af glerdótinu og virkilega gaman að koma.  Við fengum að valsa um verksmiðju þar sem heimamenn blésu upp staup og glermuni eins og við blásum upp blöðru.  Eftirá vorum við ekki alveg viss hvort við hefðum átt að borga okkur þarna inn en litum svo bara þannig á að það  hefið nú verið þeim heiður að fá þessar norðlensku handverkskonur í heimsókn (og við kallarnir fengum því að fljóta með).  Í gær fórum við svo heimsækja þau Stefan og Hanne sem eiga sumarafdrep norðarlega á Skáni, rétt hjá Kristianstad.  Þar var nú ekki í kot vísað og áttum við virkilega notalegan dag í garðinum hjá þeim og fræddumst um eitt og annað varðandi lífið á skáni svo ekki sé nú minnst á veitingarnar.

En nú tekur alvaran við (finnst eins og ég hafi sagt þetta áður) og framundan eru fundahöld, vettvangsferð til Schenker í Vaxjö og svo umbreyting á líkamlegu ásigkomulagi sem er nauðsinnlegt eftir svona syndasumar.

Gummi Ben, syndaselur í sunnudags-sólinni.

Af sýkingum og öðru spennandi stöffi

20. ágúst 2009 Guðmundur 3 ummæli

Úti er sól og sumar og ljóst að haustið er víðs fjarri okkur hér í Lundi, það er því frekar fúlt að þurfa að hanga inni með eitthvað helvítis slen.  Á mánudaginn komu þau til mín, Pabbi, Mamma, Grétar og Erna og án þess að ég geti beint tengt það við komu þeirra þá þegar um kvöldið fann ég fyrir óþægindum í vinstri olnboga og spáði svosem ekki meir í því.  Daginn eftir var hann hinsvegar  orðin stokkbólginn og rauður og ég hundslappur en sem sönnum sveitamanni sæmir beit ég á jaxlinn og fór í skoðunarferð um Lund með gestunum en þá um kvöldið var ég orðin verulega slappur.  Gærdagurinn fór því þannig að ég lá sofandi heima fram á miðjan dag en gestirnir spókuð sig um í Malmö en um kvöldið komu svo Ási, Pia og börn við hjá mér en þau eru á leið yfir til Danmerkur þar sem þau munu taka Norrænu heim til Íslands.  Í morgunn ákvað ég svo að fara til læknis og láta líta á olnbogann og eftir að hafa eytt morgninum á heilsugæslunni fékk ég tíma hjá lækni sem sagði mér að ég væri með sýkingu í hendinni og smellti kallinum á sýklalyf. Ég vona því að mér fari nú að batna og geti farið í smá bíltúr með gestunum á morgunn, en þá er planið að kíkja í Smálönd og Båstad og krúsa eitthvað um. Laugardagurinn er svo planaður í heimsókn til fjölskylduvinar í Kristianstad og á sunnudeginum fara svo gestirnir yfir til Köben, en þau eiga flug heim á mánudeginum.

Í næstu viku fer svo allt á fullt í verkefninu en þá er fundur á þriðjudegi og svo skoðunarferð til Vaxjö, að líta á ljósastýringar í vöruhóteli, með mönnum frá Regin.

Gummi Ben……….sjúklega sýktur.

Flakkarinn kominn heim

16. ágúst 2009 Guðmundur Engin ummæli

Já eftir mikið flakk, stuð og stemmingu síðustu daga er ég kominn aftur í Lundinn og fer nú að takast á við raunveruleikann.  Um helgina fórum við nokkur héðan úr Lundi ásamt tveimur vöskum piltum frá eyjunni köldu á tónlistarhátíðina Way Out West í Gautaborg, sem var í mjög stuttu máli frábær.  Þar sáum við m.a. Bon Iver, Anthony and the Johnson, Beirut, Vampire Weekend, Wolfmother, Band of horses, Florence and the machine, Arctic Monkeys og Teddybears sem ráku lestina á laugardagskvöldið.  Gautaborg klikkaði ekki á því að vera frábær staður og við hittum fullt af skemmtilegu fólki, ýmist innfæddum eða innfluttum.  Helgina þar á undan var nú ekki minna stuð því þá hittist árgangur 1977 úr Varmahlíðarskóla í Lauftúni við Varmahlíð og gerði sér svo sannarlega glaðan dag þar sem hápunkturinn var diskótek í teiknistofunni, alveg eins og í gamladaga nema núna dönsuðu allir.

Þó svo að það sé nú ansi hljótt í kotinu hjá mér núna þá varir það ekki lengi því á morgunn koma pabbi, mamma, Grétar og Erna í heimsókn og verða út vikuna að skoða sig um í Lundi og nágrenni.  Þau komu út á föstudaginn og eru búin að vera að þvælast í Kaupmannahöfn síðan.  Þetta verður því ágætis aðlögn við raunveruleikan eftir mikið stuð-sumar að hafa góða gesti !!

Gummi Ben, alltaf á flakki.