Já ef ekki nú þá aldrei, miðað við stöðu mála held ég að það sé nú kominn tími á smá færslu. Ég er nú mættur í Lundinn aftur eftir mjög svo ánægjulega, en stutta, ferð til Íslands. Sú ferð var nú heldur betur til fjár, því auk þess að hitta fallegustu stúlkur heims og skemmtilegustu fjölskyldu heims þá lánaðist mér að næla mér í vinnu. Um áramót mun ég hefja störf hjá Iðnaðartækni en það er fyrirtæki á sjálfvirkni-sviði bygginga og búnaðar. Ég mun þar taka þátt í að hann, forrita og setja upp stýringar í m.a. hússtjórnarkerfum, loftræstikerfum, hitastýringu og sundlaugarkerfum. Fyrirtækið er stórt smáfyrirtæki með aðeins tvo núverandi starfsmenn en góða verkefnastöðu og enginn sorti í framtíðinni þar á bæ. Af mastersverkefninu er það að frétta að ég er búinn að skrifa megnið af því efni sem verður í ritgerðinni og fer nú að vinna að verklegri framkvæmd hjá Regin í Landskrona og mun svo kynna herlegheitin um miðjan desember og í kjölfarið flytja heim í fjörið. En framundan er svo helgarferð til Stokkhólms þar sem ég ætla að berja augum meistarana í Muse.
og gestirnir farnir eftir ótrúlega notalega daga hér í Lundi. Eftir að hafa sýnt þeim það helsta sem Lundur hefur upp á að bjóða og hvernig svínaflensa fer með mann þá fór ég með þeim í bæinn Kosta í Smálöndum en hann er jú annar bærinn af tvíeykinu Kosta Boda og þar var nú nóg af glerdótinu og virkilega gaman að koma. Við fengum að valsa um verksmiðju þar sem heimamenn blésu upp staup og glermuni eins og við blásum upp blöðru. Eftirá vorum við ekki alveg viss hvort við hefðum átt að borga okkur þarna inn en litum svo bara þannig á að það hefið nú verið þeim heiður að fá þessar norðlensku handverkskonur í heimsókn (og við kallarnir fengum því að fljóta með). Í gær fórum við svo heimsækja þau Stefan og Hanne sem eiga sumarafdrep norðarlega á Skáni, rétt hjá Kristianstad. Þar var nú ekki í kot vísað og áttum við virkilega notalegan dag í garðinum hjá þeim og fræddumst um eitt og annað varðandi lífið á skáni svo ekki sé nú minnst á veitingarnar.
En nú tekur alvaran við (finnst eins og ég hafi sagt þetta áður) og framundan eru fundahöld, vettvangsferð til Schenker í Vaxjö og svo umbreyting á líkamlegu ásigkomulagi sem er nauðsinnlegt eftir svona syndasumar.
Já eftir mikið flakk, stuð og stemmingu síðustu daga er ég kominn aftur í Lundinn og fer nú að takast á við raunveruleikann. Um helgina fórum við nokkur héðan úr Lundi ásamt tveimur vöskum piltum frá eyjunni köldu á tónlistarhátíðina Way Out West í Gautaborg, sem var í mjög stuttu máli frábær. Þar sáum við m.a. Bon Iver, Anthony and the Johnson, Beirut, Vampire Weekend, Wolfmother, Band of horses, Florence and the machine, Arctic Monkeys og Teddybears sem ráku lestina á laugardagskvöldið. Gautaborg klikkaði ekki á því að vera frábær staður og við hittum fullt af skemmtilegu fólki, ýmist innfæddum eða innfluttum. Helgina þar á undan var nú ekki minna stuð því þá hittist árgangur 1977 úr Varmahlíðarskóla í Lauftúni við Varmahlíð og gerði sér svo sannarlega glaðan dag þar sem hápunkturinn var diskótek í teiknistofunni, alveg eins og í gamladaga nema núna dönsuðu allir.
Þó svo að það sé nú ansi hljótt í kotinu hjá mér núna þá varir það ekki lengi því á morgunn koma pabbi, mamma, Grétar og Erna í heimsókn og verða út vikuna að skoða sig um í Lundi og nágrenni. Þau komu út á föstudaginn og eru búin að vera að þvælast í Kaupmannahöfn síðan. Þetta verður því ágætis aðlögn við raunveruleikan eftir mikið stuð-sumar að hafa góða gesti !!
Síðustu athugasemdir