Safn

Færslur merktar ‘Ferðalög’

Nótt á fjöllum !

13. júlí 2009 Guðmundur Engin ummæli

Kerlingarfjöll Eftir linnulaust sólskin og særlegheit í sveitinni ákváðum við Freyja að freist gæfunnar enn innar á fjöllum og fórum á laugardaginn inn í Kerlingarfjöll og hittum þar Magga, Sunnu og Krúttí-bolluna auk annara stór-skemmtilegra samferðafélaga þeirra.  Í stuttu málið var þetta snilldar ferð í frábæru veðri og hrikalega gaman að hitta litlu fjölskylduna aftur.  Litadýrðin í Karlingarfjöllum er með öllu ólýsanleg en ég gerði þó nokkrar tilraunir við að fanga hana inn á minniskubbinn í D400 og má sjá afrakstur undir Flickr-flipanum.  Freyja svaf sína fyrstu nótt í tjaldi og kunni bara nokkuð vel við það og var komin á fætur um 7………sem var nú ansi snemma fyrir flesta enda sagði hún þegar hún rak nefið út í morgunsólina:”Það er enginn hér !”  Næst á dagskrá er svo að leggja lokahönd á undirbúning fjölskyldumótsins hér á Vatnsskarði sem fram fer um næstu helgi.

Gummi, alltaf á fjöllum.

Sveitapiltsins draumur

6. júlí 2009 Guðmundur Ein ummæli

Ferhyrnt fé Sjaldan hefur sveitin mín skartað eins góðu veðri jafn marga daga í röð og tel ég þetta þakklætisvott guðanna við komu mína á heimaslóðir.  Í tæpa viku hef ég spásserað um á stuttbuxum og hlýrabol í 20 stiga hita og sól og unnið í bændabrúnkunni sem aldrei fyrr.  Við erum búin að vera að sjæna til í sveitinni, mála útihús og skemmu og gera klárt fyrir fjölskyldumót sem verður hér haldið helgina 17. – 19. júlí.  Í dag kemur svo hún Freyja litla Björk í sveitina og þá verður nú glatt á hjalla og líklegt að við förum í sund með ömmu strump.
Ég hef síðan verið nokkuð duglegur að taka myndir og moka inn á Flickr og stendur ekki annað til en að halda því áfram.  Að lokum vil ég svo óska elskulegum bróður mínum til hamingju með árangur á nýafstöðnu fjórðungsmóti hestamanna á Kaldármelum en þar hafnaði stóðhesturinn Kiljan sem Benni hefur verið að þjálfa í efsta sæti í flokki 5 vetra stóðhesta.

Gummi, sveitapiltur !!

Týndi sonurinn kominn heim…..

26. júní 2009 Guðmundur Engin ummæli

….og auðvitað stóð íslenska þjóðin á öndinni þegar IcelandExpress vélin setti niður hjólin og það var ljóst að Guðmundur og hans fríða föruneyti var kJónsmessuhátíð Garðabæjaromið til landsins.  Af einstakri kurteis heilsuðu suðurnesjin ferðalöngum með rigningarsudda og súld og flugfreyjan sagði mine dame og herre, velkomen till island,  so nice to be home :)    Síðan þá hefur nú ýmislegt verið brallað, fjölskyldan verið heimsótt í gríð og erg sem og vinir og kunningar og vona ég að það sé nú bara rétt að byrja.  Í kvöld voru svo báðar stelpurnar hjá mér aftur og við höfðum það svo kósí að ég þarf sennilega að sofa ofan á snakkmylsnu í nótt, en hvað er ekki gert kvöldið fyrir afmæli til að hafa það nógu kósí ?  Á morgunn verður svo örverpið mitt þriggja ára og fagnar deginum með móðurfólki sínu í Torfufellinu og er þá sennilega vikulöngu afmælisferli senn lokið!!

Framundan er svo áframhaldandi heimsóknir til vina og skildmenna, sveitadvöl, fjölskyldumót og mikið stuð í allt sumar :) Minni svo auðvitað á myndasíðurnar mínar sem munu vonandi gildna all svakalega í sumar þar sem Ísland er jú svo fótógenískt !!!  Endum svo þessa færslu á tveggja lína eyðu til að minnast…………

………….Jackson………R.I.P.

Gummi….ávalt íslenskur.