Safn

Færslur merktar ‘Ísland’

Mál að tjá sig aðeins

22. október 2009 Guðmundur Ein ummæli

Já ef ekki nú þá aldrei, miðað við stöðu mála held ég að það sé nú kominn tími á smá færslu.  Ég er nú mættur í Lundinn aftur eftir mjög svo ánægjulega, en stutta, ferð til Íslands.  Sú ferð var nú heldur betur til fjár, því auk þess að hitta fallegustu stúlkur heims og skemmtilegustu fjölskyldu heims þá lánaðist mér að næla mér í vinnu.  Um áramót mun ég hefja störf hjá Iðnaðartækni en það er fyrirtæki á sjálfvirkni-sviði bygginga og búnaðar.  Ég mun þar taka þátt í að hann, forrita og setja upp stýringar í m.a. hússtjórnarkerfum, loftræstikerfum, hitastýringu og sundlaugarkerfum.  Fyrirtækið er stórt smáfyrirtæki með aðeins tvo núverandi starfsmenn en góða verkefnastöðu og enginn sorti í framtíðinni þar á bæ.  Af mastersverkefninu er það að frétta að ég er búinn að skrifa megnið af því efni sem verður í ritgerðinni og fer nú að vinna að verklegri framkvæmd hjá Regin í Landskrona og mun svo kynna herlegheitin um miðjan desember og í kjölfarið flytja heim í fjörið.  En framundan er svo helgarferð til Stokkhólms þar sem ég ætla að berja augum meistarana í Muse.

Já ég er hér enn…..

31. júlí 2009 Guðmundur Engin ummæli

Fjölskylda á ferð um miðja 18.öld ? ….og aftur kominn norður í land, þar sem sólin brosir alltaf við manni, jafnvel þótt hún skýni ekki.  Ég kom norður í gær með þrjár dömur með mér, eftir vikudvöl á suðurlandi, en þangað fór ég fljótlega eftir hið margrómaða fjölskyldumót okkar hér á Stóra-Vatnsskarði sem var eins og þeir segja…….legendary. Þar sem ég var svo svakalega upptekin við að framfylgja brennuleyfi því sem okkur áskotnaðist frá yfirvöldum hér í sveit, náði ég ekki að taka neitt af myndum á mótinu en það voru nú einhverjir aðrir duglegri og eru búnir að smella þessu hér og þar inn á facebook.  Núna erum við í augnablikinu með flatt á nokkrum stykkjum og vonumst til að ná þessu fljótlega eftir að það hættir að rigna.  Við höfum semsagt komist að því að faðir minn sem vitað var að þjáðist af smalabrjálæði á háu stigi er með vott af heyskaps-brjálæði og sló því þrátt fyrir nokkuð afgerandi rigningarspá, sennilega einungis til að storka almættinu og sjá hversu merkilegan sess hann hafi hjá honum eftir áralangan söngferil í kirkjukórnum.  Við vonum því að drottni hafi, fram að þessu, líkað við bassasöng föður míns og heyið hrekist ekki mikið hjá okkur.BRK

Framundan er svo auðvitað verslunarmannahelgin sem einkennist jú af aukinni verslun hjá smákaupmönnum og er reglan oftast sú að því smærri sem þeir eru því meiri er salan.  Ekki hafa nú verið gerð nein plön fyrir helgina en þó er aldrei að vita hvað manni dettur í hug að gera en helgina þar á eftir ætlum við svo að halda bekkjarmót árgangs 1977 í Varmahlíðarskóla og þá verður sko fjör, maður lifandi.  Það hittir nú einnig svo vel á að daginn eftir fer ég suður og tveim dögum síðar af landi brott svo það er ekki ólíklegt að maður taki upp á einhverri vitleysu sem ég get treyst að verið fallinn í gleymsku í kringum áramót.

En að svo stöddu er rétt að hætta að masa um framtíðina og reyna að lifa nútíðinni og fara að sofa, ég býð því góða nótt og lofa frekari fréttum innan skamms.

Gummi….alltaf að gera eitthvað af sér.

Nótt á fjöllum !

13. júlí 2009 Guðmundur Engin ummæli

Kerlingarfjöll Eftir linnulaust sólskin og særlegheit í sveitinni ákváðum við Freyja að freist gæfunnar enn innar á fjöllum og fórum á laugardaginn inn í Kerlingarfjöll og hittum þar Magga, Sunnu og Krúttí-bolluna auk annara stór-skemmtilegra samferðafélaga þeirra.  Í stuttu málið var þetta snilldar ferð í frábæru veðri og hrikalega gaman að hitta litlu fjölskylduna aftur.  Litadýrðin í Karlingarfjöllum er með öllu ólýsanleg en ég gerði þó nokkrar tilraunir við að fanga hana inn á minniskubbinn í D400 og má sjá afrakstur undir Flickr-flipanum.  Freyja svaf sína fyrstu nótt í tjaldi og kunni bara nokkuð vel við það og var komin á fætur um 7………sem var nú ansi snemma fyrir flesta enda sagði hún þegar hún rak nefið út í morgunsólina:”Það er enginn hér !”  Næst á dagskrá er svo að leggja lokahönd á undirbúning fjölskyldumótsins hér á Vatnsskarði sem fram fer um næstu helgi.

Gummi, alltaf á fjöllum.