Já ef ekki nú þá aldrei, miðað við stöðu mála held ég að það sé nú kominn tími á smá færslu. Ég er nú mættur í Lundinn aftur eftir mjög svo ánægjulega, en stutta, ferð til Íslands. Sú ferð var nú heldur betur til fjár, því auk þess að hitta fallegustu stúlkur heims og skemmtilegustu fjölskyldu heims þá lánaðist mér að næla mér í vinnu. Um áramót mun ég hefja störf hjá Iðnaðartækni en það er fyrirtæki á sjálfvirkni-sviði bygginga og búnaðar. Ég mun þar taka þátt í að hann, forrita og setja upp stýringar í m.a. hússtjórnarkerfum, loftræstikerfum, hitastýringu og sundlaugarkerfum. Fyrirtækið er stórt smáfyrirtæki með aðeins tvo núverandi starfsmenn en góða verkefnastöðu og enginn sorti í framtíðinni þar á bæ. Af mastersverkefninu er það að frétta að ég er búinn að skrifa megnið af því efni sem verður í ritgerðinni og fer nú að vinna að verklegri framkvæmd hjá Regin í Landskrona og mun svo kynna herlegheitin um miðjan desember og í kjölfarið flytja heim í fjörið. En framundan er svo helgarferð til Stokkhólms þar sem ég ætla að berja augum meistarana í Muse.
Jæja þá er þetta allt saman komið á fullt hér í Lundi, göngustígarnir fullir að fólki sem er annaðhvort klætt eins og fávitar (ný-nemar í búningum ?? veit ekki meir) eða fólk sem starir í kringum sig eins og fávitar og veit ekkert hvert það á að fara. Á bókasafninu fjölgar andlitum dag frá degi og ég get ekki lengur sungið upphátt í þagnar-salnum. Ég er búinn að fara á tvo fundi með leiðbeinandanum í Regin og svo fórum við einnig í dagsferð til Vaxjö að kíkja á ljósastýringu í vöruhóteli á vegum Schenker flutningafyrirtækisins. Ég fór svo á föstudaginn og hitti hann Gunnar vin minn og leiðbeinanda hjá LTH og hann var bara hinn hressasti og hafði mestan áhuga á Lukku og Lukku-láka, en með brögðum náið ég aðeins að ræða verkefnið mitt. Þetta stefnir allavega í rétta átt og nú er bara að vera duglegur að skrifa og svo stefni ég á að kynna þeim í Regin mínar fyrstu niðurstöður í lok næstu viku.
Annars er bara búið að vera endalaust af matarboðum, gleði og gaman enda enn sumar í fólki hér um slóðir, 23 stiga hiti og samt er komin 1.sept. En það þýðir lítið að hugsa um það, nú er það bara loftkælingin á studicenter og skriftir !!!!
Úti er sól og sumar og ljóst að haustið er víðs fjarri okkur hér í Lundi, það er því frekar fúlt að þurfa að hanga inni með eitthvað helvítis slen. Á mánudaginn komu þau til mín, Pabbi, Mamma, Grétar og Erna og án þess að ég geti beint tengt það við komu þeirra þá þegar um kvöldið fann ég fyrir óþægindum í vinstri olnboga og spáði svosem ekki meir í því. Daginn eftir var hann hinsvegar orðin stokkbólginn og rauður og ég hundslappur en sem sönnum sveitamanni sæmir beit ég á jaxlinn og fór í skoðunarferð um Lund með gestunum en þá um kvöldið var ég orðin verulega slappur. Gærdagurinn fór því þannig að ég lá sofandi heima fram á miðjan dag en gestirnir spókuð sig um í Malmö en um kvöldið komu svo Ási, Pia og börn við hjá mér en þau eru á leið yfir til Danmerkur þar sem þau munu taka Norrænu heim til Íslands. Í morgunn ákvað ég svo að fara til læknis og láta líta á olnbogann og eftir að hafa eytt morgninum á heilsugæslunni fékk ég tíma hjá lækni sem sagði mér að ég væri með sýkingu í hendinni og smellti kallinum á sýklalyf. Ég vona því að mér fari nú að batna og geti farið í smá bíltúr með gestunum á morgunn, en þá er planið að kíkja í Smálönd og Båstad og krúsa eitthvað um. Laugardagurinn er svo planaður í heimsókn til fjölskylduvinar í Kristianstad og á sunnudeginum fara svo gestirnir yfir til Köben, en þau eiga flug heim á mánudeginum.
Í næstu viku fer svo allt á fullt í verkefninu en þá er fundur á þriðjudegi og svo skoðunarferð til Vaxjö, að líta á ljósastýringar í vöruhóteli, með mönnum frá Regin.
Síðustu athugasemdir