Safn

Færslur merktar ‘lundur’

Flakkarinn kominn heim

16. ágúst 2009 Guðmundur Engin ummæli

Já eftir mikið flakk, stuð og stemmingu síðustu daga er ég kominn aftur í Lundinn og fer nú að takast á við raunveruleikann.  Um helgina fórum við nokkur héðan úr Lundi ásamt tveimur vöskum piltum frá eyjunni köldu á tónlistarhátíðina Way Out West í Gautaborg, sem var í mjög stuttu máli frábær.  Þar sáum við m.a. Bon Iver, Anthony and the Johnson, Beirut, Vampire Weekend, Wolfmother, Band of horses, Florence and the machine, Arctic Monkeys og Teddybears sem ráku lestina á laugardagskvöldið.  Gautaborg klikkaði ekki á því að vera frábær staður og við hittum fullt af skemmtilegu fólki, ýmist innfæddum eða innfluttum.  Helgina þar á undan var nú ekki minna stuð því þá hittist árgangur 1977 úr Varmahlíðarskóla í Lauftúni við Varmahlíð og gerði sér svo sannarlega glaðan dag þar sem hápunkturinn var diskótek í teiknistofunni, alveg eins og í gamladaga nema núna dönsuðu allir.

Þó svo að það sé nú ansi hljótt í kotinu hjá mér núna þá varir það ekki lengi því á morgunn koma pabbi, mamma, Grétar og Erna í heimsókn og verða út vikuna að skoða sig um í Lundi og nágrenni.  Þau komu út á föstudaginn og eru búin að vera að þvælast í Kaupmannahöfn síðan.  Þetta verður því ágætis aðlögn við raunveruleikan eftir mikið stuð-sumar að hafa góða gesti !!

Gummi Ben, alltaf á flakki.

Lífið heldur áfram í Lundi

18. júní 2009 Guðmundur Ein ummæli

17.júní Í dag var síðasti dagurinn hennar Freyju á leikskólanum hér í Lundi og tók hún því nú bara nokkuð vel og fóstrurnar höfðu það á orði að í vikunni þegar þær voru að segja henni að þær væru svo leiðar yfir því að hún væri að hætta, þá sagði hún:” já en það er ekki í dag!”.  Svo vorum við knúsuð og kysst í bak og fyrir og mér sýndist þær sjá ansi mikið eftir litlu músinni minni enda hefur hún nú verið mikill gleðigjafi þarna sem annarsstaðar. Það var svo mikill spenningur þegar hún var að fara að sofa í kvöld því á morgunn förum við upp á Kastrup að taka á móti Karen Ástu og Ástu Nínu og þá verður sko fjör !!

Á laugardaginn er svo stóri dagurinn hjá okkur því þá ætla Freyja og vinkonur hennar Milla og Vaka að halda afmælisveislu úti í garði og er búist við fjölda manns, góðu veðri og miklu stuði.

Á þriðjudaginn komum við svo öll fjögur saman heim til Íslands og þá verðu nú gaman að hitta fjölskyldu og vini, farið endilega að panta okkur í matarboð og svona :)

Þangað til næst……góðar stundir !!

17.júní

18. júní 2009 Guðmundur Engin ummæli

Já það er hvergin látið deigan síga í Lundi, við hittumst heill hópur af fólki og héldum upp á þjóðhátíðina hér í Lundi.  Ég er svo búin að setja nokkrar myndir frá atburðinum inn á Flickr.

Friends

17.júní

Kíkið endilega á þær !!

Categories: Myndir Tags: , , ,