Safn

Færslur merktar ‘Myndir’

Sunnudagsmorgunn og sólin situr við borðið……

23. ágúst 2009 Guðmundur Engin ummæli

Skåne og gestirnir farnir eftir ótrúlega notalega daga hér í Lundi.  Eftir að hafa sýnt þeim það helsta sem Lundur hefur upp á að bjóða og hvernig svínaflensa fer með mann þá fór ég með þeim í bæinn Kosta í Smálöndum en hann er jú annar bærinn af tvíeykinu Kosta Boda og þar var nú nóg af glerdótinu og virkilega gaman að koma.  Við fengum að valsa um verksmiðju þar sem heimamenn blésu upp staup og glermuni eins og við blásum upp blöðru.  Eftirá vorum við ekki alveg viss hvort við hefðum átt að borga okkur þarna inn en litum svo bara þannig á að það  hefið nú verið þeim heiður að fá þessar norðlensku handverkskonur í heimsókn (og við kallarnir fengum því að fljóta með).  Í gær fórum við svo heimsækja þau Stefan og Hanne sem eiga sumarafdrep norðarlega á Skáni, rétt hjá Kristianstad.  Þar var nú ekki í kot vísað og áttum við virkilega notalegan dag í garðinum hjá þeim og fræddumst um eitt og annað varðandi lífið á skáni svo ekki sé nú minnst á veitingarnar.

En nú tekur alvaran við (finnst eins og ég hafi sagt þetta áður) og framundan eru fundahöld, vettvangsferð til Schenker í Vaxjö og svo umbreyting á líkamlegu ásigkomulagi sem er nauðsinnlegt eftir svona syndasumar.

Gummi Ben, syndaselur í sunnudags-sólinni.

Týndi sonurinn kominn heim…..

26. júní 2009 Guðmundur Engin ummæli

….og auðvitað stóð íslenska þjóðin á öndinni þegar IcelandExpress vélin setti niður hjólin og það var ljóst að Guðmundur og hans fríða föruneyti var kJónsmessuhátíð Garðabæjaromið til landsins.  Af einstakri kurteis heilsuðu suðurnesjin ferðalöngum með rigningarsudda og súld og flugfreyjan sagði mine dame og herre, velkomen till island,  so nice to be home :)    Síðan þá hefur nú ýmislegt verið brallað, fjölskyldan verið heimsótt í gríð og erg sem og vinir og kunningar og vona ég að það sé nú bara rétt að byrja.  Í kvöld voru svo báðar stelpurnar hjá mér aftur og við höfðum það svo kósí að ég þarf sennilega að sofa ofan á snakkmylsnu í nótt, en hvað er ekki gert kvöldið fyrir afmæli til að hafa það nógu kósí ?  Á morgunn verður svo örverpið mitt þriggja ára og fagnar deginum með móðurfólki sínu í Torfufellinu og er þá sennilega vikulöngu afmælisferli senn lokið!!

Framundan er svo áframhaldandi heimsóknir til vina og skildmenna, sveitadvöl, fjölskyldumót og mikið stuð í allt sumar :) Minni svo auðvitað á myndasíðurnar mínar sem munu vonandi gildna all svakalega í sumar þar sem Ísland er jú svo fótógenískt !!!  Endum svo þessa færslu á tveggja lína eyðu til að minnast…………

………….Jackson………R.I.P.

Gummi….ávalt íslenskur.

Afmæli

20. júní 2009 Guðmundur Engin ummæli

little miss Kitty Jæja það var þreytt en sæl dama sem sofnaði snuddulaus eftir mjög skemmtilegan “afmælisdag” og eins og Vaka vinkona hennar, með barbie dúkku í hendinni. Dagurinn byrjaði með því að við Karen gáfum henni Hello Kitty hlaupahjól og sú varð nú hissa, þrátt fyrir að hafa verið búin að biðja um þetta í marga mánuði. Eftir að hafa tekið skeifnasprettinn á nýja hlaupahjólinu um kjammann, skellti Freyja sér í lúr og svo hófst sjálft afmælið. Í stuttu málið var veðrið yndislegt, veitingarnar frábærar (takk Herborg og Jara), gestirnir skemmtilegir og afmælisdömurnar til fyrirmyndar í alla staði. Þegar leið á afmælið tætti Freyja sig svo úr skóm og sokkabuxum og valsaði um garðinn þangað til hún steig í kattarskít og angaði sem slíkur og var því fjarlægð fljótlega og heim í bað!! Eftir það var svo klárað að taka upp pakkana og meðal annars kom upp úr pakka hljóðnemi og statíf sem vakti mikla lukku enda búið að standa til lengi að kaupa svoleiðis handa litlu söngkonunni. Eftir nokkra tónleika, kvöldmat og sprell datt hún svo út af, snuddulaus, með það loforð frá föðurnum að fá hnetur og súkkulaðirúsínur strax í fyrramálið yfir góðri mynd með Línu, en það var búið að standa til að parkera öllum snuddum þegar hún yrði 3ára og það var sennilega í dag að hennar mati.

Á morgunn er svo planið að spássera um Malmö og líta m.a. á Tourning Torso turninn.  Þangað til næst, lifið heil.

Categories: Afmæli, Myndir, Stelpurnar Tags: , ,