Safn

Færslur merktar ‘Skólamál’

Mál að tjá sig aðeins

22. október 2009 Guðmundur Ein ummæli

Já ef ekki nú þá aldrei, miðað við stöðu mála held ég að það sé nú kominn tími á smá færslu.  Ég er nú mættur í Lundinn aftur eftir mjög svo ánægjulega, en stutta, ferð til Íslands.  Sú ferð var nú heldur betur til fjár, því auk þess að hitta fallegustu stúlkur heims og skemmtilegustu fjölskyldu heims þá lánaðist mér að næla mér í vinnu.  Um áramót mun ég hefja störf hjá Iðnaðartækni en það er fyrirtæki á sjálfvirkni-sviði bygginga og búnaðar.  Ég mun þar taka þátt í að hann, forrita og setja upp stýringar í m.a. hússtjórnarkerfum, loftræstikerfum, hitastýringu og sundlaugarkerfum.  Fyrirtækið er stórt smáfyrirtæki með aðeins tvo núverandi starfsmenn en góða verkefnastöðu og enginn sorti í framtíðinni þar á bæ.  Af mastersverkefninu er það að frétta að ég er búinn að skrifa megnið af því efni sem verður í ritgerðinni og fer nú að vinna að verklegri framkvæmd hjá Regin í Landskrona og mun svo kynna herlegheitin um miðjan desember og í kjölfarið flytja heim í fjörið.  En framundan er svo helgarferð til Stokkhólms þar sem ég ætla að berja augum meistarana í Muse.

Lundarlífið

1. september 2009 Guðmundur Engin ummæli

Jæja þá er þetta allt saman komið á fullt hér í Lundi, göngustígarnir fullir að fólki sem er annaðhvort klætt eins og fávitar (ný-nemar í búningum ??  veit ekki meir) eða fólk sem starir í kringum sig eins og fávitar og veit ekkert hvert það á að fara.  Á bókasafninu fjölgar andlitum dag frá degi og ég get ekki lengur sungið upphátt í þagnar-salnum.  Ég er búinn að fara á tvo fundi með leiðbeinandanum í Regin og svo fórum við einnig í dagsferð til Vaxjö að kíkja á ljósastýringu í vöruhóteli á vegum Schenker flutningafyrirtækisins.  Ég fór svo á föstudaginn og hitti hann Gunnar vin minn og leiðbeinanda hjá LTH og hann var bara hinn hressasti og hafði mestan áhuga á Lukku og Lukku-láka, en með brögðum náið ég aðeins að ræða verkefnið mitt.  Þetta stefnir allavega í rétta átt og nú er bara að vera duglegur að skrifa og svo stefni ég á að kynna þeim í Regin mínar fyrstu niðurstöður í lok næstu viku.

Annars er bara búið að vera endalaust af matarboðum, gleði og gaman enda enn sumar í fólki hér um slóðir, 23 stiga hiti og samt er komin 1.sept.  En það þýðir lítið að hugsa um það, nú er það bara loftkælingin á studicenter og skriftir !!!!

Gummi Ben…..alltaf skólastrákur.

á lífi ?

13. júní 2009 Guðmundur Ein ummæli

Módel óskast / Model wanted

Jú ég er á lífi hér þó svo að það sé ekki hægt að sjá það á örum skrifum. Núna er ég samt að laga til í kringum mig og því mun þessi síða taka breytingum hér á næstunni. Það styttist í heimsókn, afmæli og Íslandsför, ég er búinn með alla kúrsa og verkefni nema lokaverkefnið sem ég er að vinna að núna….svo það er bara gleðin ein.

Fylgist með breytingum hér á síðunni…..