Safn

Færslur merktar ‘Tónlist’

Tónleikar ársins

26. nóvember 2009 Guðmundur Ein ummæli

Af því að ég er nýbúinn að borga fyrir að halda þessari síðu opinni næstu árin og veit aldrei almennilega hvað ég á að setja inn og ef ég slysast til þess, hvort einhver les þetta þá ákvað ég að setja saman lista yfir þá tónlistarmenn sem ég hef séð á árinu í máli og myndum.  Ég er þá aðalega að tala um þá sem mig langaði virkilega að sjá en ekki einhver afstyrmi sem annaðhvort fengu að hita upp eða ég labbaði óvart fram hjá sviðinu þegar þeir voru að nýðast á því sem þeir kalla tónlist.

En nóg af masi byrjum á því sem ég sá síðast en það voru þær tvíburasysturnar Tegan og Sara frá Kanada:

Þær spiluðu í Mejeriet í Lundi og þetta voru hörku tónleikar.  Sá sem hitaði upp fyrir þær var bandaríkjamaður sem kallar sig Astronautalis og var bara nokkuð hress gaur sem er allt í lagið að hlusta aðeins á.

Þar áður fór ég á Stora Vega í Kaupmannahöfn og sá þá hressu gaura í hljómsveitinni Rise Against

Svakalega þétt band sem hélt áhorfendum algjörlega við efnið og fyrir mitt leiti enduðu þessir tónleikar virkilega með stæl, þar sem ég var rifinn upp og crowd-surfaði yfir salinn og niður fyrir frama sviðið…..mjög hressandi :)

Á undan þeim voru einir af þeim tónleikum sem virkilega stand upp úr því sem ég hef á nokkur tímann séð, en það voru tónleikar í Hovet, Stokkhólmi með MUSE

Klárlega gæsahúð ársins að sjá þessa risavöxnu kubba og stubba spila.
Næstir á undan þeim voru frændur mínir frá Noregi, þeir Erlend Öye og Erik Glambek Böe, en saman mynda þeir bandið Kings of Convenience. Tónleikarnir voru í Mejeriet í Lundi og virkilega góðir

Upphitunar númerið þeirra þetta kvöld var Bart nokkur Davinport, áhugaverður tónlistarmaður sem er nú búinn að vera að í einhvern tíma

Virkilega gott kvöld í mjólkurbúinu og við Júlíus skemmtum okkur mjög vel. Þegar þarna er komið sögu kem ég að hápunkti ársins ef svo má segja því það er WayOutWest tónlistarhátíðin í Gautaborg. Ég fór þarna í nokkuð stórum hóp íslendinga og ekki vantaði atriðin á hátíðina, frekar tíma til að sjá allt sem var í boði. Ég man nú ekki alveg röðin rétta en ég byrjaði allavega á því að sjá Timo Räisänen

Skemmtilegur fír sem er ansi mikið í því að gera undarlegar ábreiður á verk annara. Ef svo var strunsað á næsta svið að sjá snillingana í Bon Iver

Frábærir tónlistarmenn og tónleikarnir þeirra stóðu lengi uppi sem besta atriði hátíðarinnar. En það var svo sannarlega margt á WOW sem veitti samkeppni, eins og t.d. Florence and the machine

Gullfalleg og gríðarlega hæfileikarík ung kona. En það voru fleiri góðir eins og Beirut

Band of horses

Glasvegas

og töffararnir í Wolfmother

þessir er sko to cool for school. En svo var líka Anthony and the Jhonson með sinfóníuhljómsveit Gautaborgar

gríðarlega tilkomumikið þótt ekki væru allir í hópnum eins ánægðir með þetta atriði.
Þá er komið að bandinu sem ég var búinn að bíða í mörg ár eftir að sjá og þeir voru svo sannarlega ekki að valda mér vonbrigðum blessaðir. Ég er að tala um Alex Turner og félaga í Arctic Monkeys

Þeir spiluðu talsvert efni af Humbug, nýjasta disknum sínum en einnig gamalt og gott efni.
Tónlistarhátíðina Way Out West enduðu svo brjálæðingarnir í Teddybers………….og eins og má sjá á þessu vídeói frá tónleikunum var þetta lokalag alveg að gera sig

Geggjuð hátíð enduð með svakalegu lagi með enn svakalegri hljómsveit.

Þetta var tónleikaárið mitt í máli og (hreyfi)myndum og vona ég að þú hafir komist niður í þessa línu og jafnvel hlustað á eitthvað af því sem á leið þinni varð.  Ég held ég sé ekki að gleyma neinum, en þá voru þeir bara ekki merkilegri en það :)

Categories: Almennt, Tónlist Tags: ,

Flakkarinn kominn heim

16. ágúst 2009 Guðmundur Engin ummæli

Já eftir mikið flakk, stuð og stemmingu síðustu daga er ég kominn aftur í Lundinn og fer nú að takast á við raunveruleikann.  Um helgina fórum við nokkur héðan úr Lundi ásamt tveimur vöskum piltum frá eyjunni köldu á tónlistarhátíðina Way Out West í Gautaborg, sem var í mjög stuttu máli frábær.  Þar sáum við m.a. Bon Iver, Anthony and the Johnson, Beirut, Vampire Weekend, Wolfmother, Band of horses, Florence and the machine, Arctic Monkeys og Teddybears sem ráku lestina á laugardagskvöldið.  Gautaborg klikkaði ekki á því að vera frábær staður og við hittum fullt af skemmtilegu fólki, ýmist innfæddum eða innfluttum.  Helgina þar á undan var nú ekki minna stuð því þá hittist árgangur 1977 úr Varmahlíðarskóla í Lauftúni við Varmahlíð og gerði sér svo sannarlega glaðan dag þar sem hápunkturinn var diskótek í teiknistofunni, alveg eins og í gamladaga nema núna dönsuðu allir.

Þó svo að það sé nú ansi hljótt í kotinu hjá mér núna þá varir það ekki lengi því á morgunn koma pabbi, mamma, Grétar og Erna í heimsókn og verða út vikuna að skoða sig um í Lundi og nágrenni.  Þau komu út á föstudaginn og eru búin að vera að þvælast í Kaupmannahöfn síðan.  Þetta verður því ágætis aðlögn við raunveruleikan eftir mikið stuð-sumar að hafa góða gesti !!

Gummi Ben, alltaf á flakki.